Stórsýning opnuð á Höfða á föstudaginn

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Síðdegis á föstudaginn var opnuð sýning þriggja listamanna á Höfða; hjúkrunar- og dvalarheimili á Akranesi en listamennirnir sem voru með verk á sýningunni voru þau Brynja Jóhannsdóttir, Gerður Guðjónsdóttir og Sigurður Mikael Jónsson. Er sýningin liður í lista- og menningarhátíðinni Vökudögum sem nú standa yfir og verður opin alla Vökudagana á meðan húsið er opið. Þá er einnig sýningin Ég og umhverfið mitt sem er myndlistarsýning elstu barna á leikskólanum Garðaseli í gangi alla Vökudagana á Höfða. Boðið var upp á léttar veitingar við opnun sýningarinnar og var margt um manninn, bæði íbúar, starfsfólk, listafólkið sjálft og aðrir gestir. Meðfylgjandi myndir leyfum við að tala sínu máli en þær tók Valdimar K. Sigurðsson blaðamaður Skessuhorns við þetta tilefni.\r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"large\" ids=\"57511,57512,57513,57514,57515,57516,57517,57518\"]",
  "innerBlocks": []
}
Stórsýning opnuð á Höfða á föstudaginn - Skessuhorn