
Guðlaugur Þór afhendir hér Ómari Ragnarssyni náttúruviðurkenningu Sigríðar í Brattholti 16. september sl. Ljósm. Stjórnarráðið.
Guðlaugur Þór í formannsslag í Sjálfstæðisflokknum
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Borgnesingurinn Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis- og loftslagsráðherra tilkynnti á fundi í Valhöll í hádeginu í dag að hann hyggist bjóða sig fram til formanns Sjálfstæðisflokksins á landsfundi flokksins um næstu helgi. Þar með leggur hann allt undir, ef svo má segja, um pólitíska framtíð sína. Fram til þessa hafði einungis Bjarni Benediktsson sitjandi formaður lýst yfir framboði. Í viðtali í umræðuþættinum Silfrinu í Ríkissjónvarpinu fyrr í dag kvaðst Guðlaugur Þór hafa áhyggjur af þeirri vegferð sem Sjálfstæðisflokkurinn væri í. Meðal annars vildi hann tala með beinni hætti til hins almenna flokksmanns og fólksins í landinu, en gert hefur verið. Í kjölfar þeirra ummæla mætti hann vígreifur á fund í Valhöll við Háaleitisbraut og tilkynnti ákvörðun sína.\r\n\r\nBjarni Benediktsson, sitjandi formaður Sjálfstæðisflokksins hefur frá árinu 2009 gegnt embættinu. Bjarni sagði í viðtali við fjölmiðla í morgun að ef Guðlaugur hefði betur í formannskjörinu um næstu helgi myndi hann sjálfur hætta þátttöku í stjórnmálum.",
"innerBlocks": []
}