Fréttir

true

Apótek Vesturlands hefur opnað útibú í Borgarnesi

Apótek Vesturlands opnaði sitt þriðja útibú um síðastliðna helgi og er það staðsett í Borgarnesi. Apótekið er að Digranesgötu 6, í sama húsnæði og Bónus, Lífland og Geirabakarí, og mun það vera opið alla daga vikunnar. ,,Við opnuðum okkar fyrstu lyfjabúð á Akranesi 30. júlí 2007, svo keyptum við lyfjabúðina í Ólafsvík, mínum gamla heimabæ,…Lesa meira

true

Öflugt alþjóðlegt samstarf í FVA

Alþjóðleg starfsemi í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi hefur skiljanlega verið í nokkurri lægð vegna heimsfaraldursins sl. tvö ár en er nú farin af stað af fullum krafti. Steinunn Inga Óttarsdóttir skólameistari segir það nauðsynlegt hverju ungmenni að kynnast öðrum þjóðum og fjölbreytilegri menningu. Alþjóðasamstarf í FVA sé öflugt og feli í sér samstarfsverkefni á ýmsum…Lesa meira

true

Nýir eigendur Borgarsports

Systkinin Eva Karen Þórðardóttir og Þorsteinn Pálsson hafa fest kaup á Borgarsporti, verslun í Hyrnutorgi í Borgarnesi. Opnunarhóf verður næsta laugardag frá klukkan 16 til 19 og breytingar eru fyrirhugaðar á útliti búðarinnar og vöruúrvali. ,,Borgarsport verður staður fyrir þig ef þú vilt hefja þína heilsuvegferð, hvort sem það er að stunda útihlaup, mæta í…Lesa meira

true

Líflegt haust í landshlutanum

Ekki skortir menningu, fjör og mannlíf í byggðakjörnum Vesturlands þennan mánuðinn. Ýmsar hausthátíðir standa yfir þessa dagana og nóg er um að vera. Um helgina er menningarhátíðin Norðurljósin í Stykkishólmi og Haustfagnaður sauðfjárbænda í Dölum. Í vikunni þar eftir hefjast svo Vökudagar á Akranesi sem er tíu daga menningar- og listahátíð. Þá lauk menningarhátíðinni Rökkurdögum…Lesa meira

true

Framkvæmdir á hundasvæðinu á Akranesi

Fram kemur á heimasíðu Akraneskaupstaðar að nú séu framkvæmdir í gangi á hundasvæðinu við Miðvog sem munu standa í nokkra daga. Hundaeigendur sem hyggjast nýta svæðið á meðan vinna er í gangi eru beðnir um að sýna aðgát og tillitssemi. Beðist er velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að valda segir í tilkynningu kaupstaðarins.  Lesa meira

true

Húsið Kirkjuhvoll leigt fyrir íþróttafólk tímabundið

Á fundi bæjarráðs Akraness í morgun var tekið fyrir erindi frá Knattspyrnufélagi ÍA um að fá að nýta húsið Kirkjuhvol fyrir íþróttafólk á vegum KFÍA og mögulega annarra íþróttafélaga þar til bærinn hefur ráðstafað húsinu. Bæjarráð samþykkti að húsnæðið verði nýtt tímabundið af ÍA gegn hóflegri leigu en mikilvægt að það verði útfært þannig að…Lesa meira

true

Opið hús í MB í dag: Afrakstur Lífsnámsviku sýndur

Lífsnámsviku lýkur í dag í Menntaskóla Borgarfjarðar. Þar hafa nemendur starfað í hópum og unnið að heilsutengdum verkefnum, en opið hús er í skólanum kl.16-17:30 í dag fimmtudag, þar sem afrakstur vikunnar er sýndur. Skólinn hefur stundað ákveðið frumkvöðlastarf á sviði menntunar og námið þar verið í stöðugri þróun frá upphafi skólans. Lífsnámsáfangarnir eru afrakstur vinnu…Lesa meira

true

Sportbátar færa Björgunarsveitinni Oki nýjan slöngubát að gjöf

Fyrirtækið Sportbátar er meðal annars umboðsaðili fyrir Zodiac og Bombard slöngubáta. Forsvarsmenn þeirra ákváðu að færa Björgunarsveitinnni Oki í Borgarfirði Zodiac slöngubát að gjöf. Mun hann nýtast vel í leit, björgun og á æfingum sveitarinnar. Slöngubáturinn er 4.7 metrar á lengd, hefur 2-3 í áhöfn og hentar fyrir 40 hestafla mótor. Hann getur borið meira…Lesa meira

true

Lífið var einfalt og skemmtilegt en stundum hættulegt

Í september kom út bókin Gaddavír og gotterí eftir Lilju Magnúsdóttur. Lilja er Borgfirðingur og ólst upp á Stað í Borgarhreppi og á Hraunsnefi í Norðurárdal. Hún stundaði nám á Varmalandi og fór síðan í Reykholt en eftir það lá leiðin til Reykjavíkur þar sem hún fór í íslensku í Háskóla Íslands, tók kennararpróf og…Lesa meira

true

Snæfell enn á sigurbraut

Snæfell tók á móti Hamar/Þór í 1. deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi og fór leikurinn fram í Stykkishólmi. Leikurinn fór rólega af stað en í stöðunni 5:6 náðu gestirnir góðum spretti og skoruðu tíu stig gegn aðeins tveimur stigum Snæfells, staðan 7:16 fyrir Hamar/Þór eftir rúman fimm mínútna leik. Snæfellskonur voru þó fljótar til…Lesa meira