{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Apótek Vesturlands opnaði sitt þriðja útibú um síðastliðna helgi og er það staðsett í Borgarnesi. Apótekið er að Digranesgötu 6, í sama húsnæði og Bónus, Lífland og Geirabakarí, og mun það vera opið alla daga vikunnar. ,,Við opnuðum okkar fyrstu lyfjabúð á Akranesi 30. júlí 2007, svo keyptum við lyfjabúðina í Ólafsvík, mínum gamla heimabæ, í október 2020. Borgarnes er því þriðja útibúið sem rekið er undir merkjum Apóteks Vesturlands. Við opnuðum laugardaginn 15. október en unnið er að merkingum hússins að utan ásamt því að verið er að auka vöruúrval í lyfjabúðinni og finna út hvaða vörur viðskiptavinir okkar leggja áherslu á að við séum með. Við hjá Apóteki Vesturlands leggjum mikið upp úr góðri þjónustu við viðskiptavini okkar, auk þess kappkostum við að vera með gott vöruúrval á hagstæðu verði. Við bjóðum upp á vélskömmtun lyfja í samstarfi við Lyfjaver og auk þess bjóðum við bæði upp á mælingar á blóðsykri og blóðþrýstingi. Við veitum að sjálfsögðu almenna og sérhæfða ráðgjöf um allt er varðar lyf og lyfjanotkun enda með reynda lyfjafræðinga og vel þjálfað starfsfólk á staðnum. Opnunartími okkar er hluti af því að veita góða þjónustu. Á Akranesi er opið alla daga vikunnar og hefur verið allt frá opnun en við ætlum einnig að hafa opið alla daga vikunnar í Borgarnesi,“ segir Ólafur Guðmundur Adolfsson, eigandi Apóteks Vesturlands.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_57175\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-57175 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/10/Apotek-Vesturlands-hefur-opnad-i-Borgarnesi_2-600x450.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"450\" /> Myndir úr nýju útibúi Apóteks Vesturlands í Borgarnesi[/caption]\r\n\r\n ",
"innerBlocks": []
}