Húsið Kirkjuhvoll eins og það lítur út í dag. Ljósm. vaks

Húsið Kirkjuhvoll leigt fyrir íþróttafólk tímabundið

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Á fundi bæjarráðs Akraness í morgun var tekið fyrir erindi frá Knattspyrnufélagi ÍA um að fá að nýta húsið Kirkjuhvol fyrir íþróttafólk á vegum KFÍA og mögulega annarra íþróttafélaga þar til bærinn hefur ráðstafað húsinu. Bæjarráð samþykkti að húsnæðið verði nýtt tímabundið af ÍA gegn hóflegri leigu en mikilvægt að það verði útfært þannig að unnt sé að losa það með skömmum fyrirvara komi til þess að það verði selt eins og samþykkt hefur verið að gera.\r\n\r\nKirkjuhvoll við Merkigerði er án efa eitt af merkari húsum á Akranesi. Það var reist árið 1923 og fagnar því 100 ára afmæli á næsta ári. Það voru hjónin séra Þorsteinn Briem og Valgerður Lárusdóttir sem réðust í byggingu þess en yfirsmiður var Páll Friðriksson, bróðir séra Friðriks Friðrikssonar stofnanda KFUM á Íslandi. Séra Þorsteinn Briem bjó í húsinu frá byggingu þess til ársins 1946 eða allt þar til séra Jón M. Guðjónsson flutti inn og dvaldi til ársins 1975. Þá tók séra Björn Jónsson við og bjó þar til 1978.\r\n\r\nÞegar hlutverki Kirkjuhvols lauk sem prestsbústaðar tók við tímabil þar sem húsið þjónaði sem heimavist Fjölbrautaskólans á Akranesi. Árið 1985 var svo komið að húsið var ekki lengur talið íbúðarhæft og jafnvel talið sýnt að það yrði rifið. Það varð Kirkjuhvoli til bjargar að hjónin Sigurður Ragnarsson og Drífa Björnsdóttir keyptu húsið af Akranesbæ og á aðdáunarverðan hátt endurbyggðu það í því sem næst upprunalegri mynd. Séra Jón M Guðjónsson lést 18. febrúar 1994. Hinsta ósk hans var sú að í Görðum myndi rísa listasafn. Byrjunaráfangi að þeirri draumsýn varð að veruleika er nýstofnuðum minningarsjóði um séra Jón tókst með stuðningi Akraneskaupstaðar að fjármagna kaup á Kirkjuhvoli. Stjórn sjóðsins ákvað að þar skyldi starfrækt listasetur í anda þess manns er þjónað hafði Skagamönnum af einhug í áratugi.\r\n\r\nÍ aðdraganda þess að Kirkjuhvoll varð listasetur vann hússtjórn skipuð sjálfboðaliðum mikið starf. Á fyrstu árum listaseturs í Kirkjuhvoli naut starfsemin mikils stuðnings frá fyrirtækjum og einstaklingum, auk sjálfboðaliða sem unnu ómetanlegt starf. Listasetrið var formlega opnað í janúar 1995 og voru haldnar þar um 150 myndlistarsýningar auk annarra uppákoma, svo sem ljóðalesturs, sögustunda og annarra menningartengdra viðburða. Jóhanna L. Jónsdóttir, dóttir séra Jóns, veitti Listasetrinu Kirkjuhvoli forstöðu frá upphafi til enda eða í 18 ár.\r\n\r\nÁrið 2013 hætti Akraneskaupstaður að reka listasetur á Kirkjuhvoli og árið eftir tók fyrirtækið Skagaferðir ehf. húsið á leigu og rak þar gistihús auk þess að vera með menningartengda viðburði í húsinu. Hjónin Eggert Herbertsson og Ingibjörg Valdimarsdóttir hafa frá árinu 2016 verið með gistiheimili undir heitinu StayWest á Kirkjuhvoli til leigu en sá samningur rann út í haust.",
  "innerBlocks": []
}
Húsið Kirkjuhvoll leigt fyrir íþróttafólk tímabundið - Skessuhorn