Bátur eins og sá sem Sportbátar gefa. Sportbátar.

Sportbátar færa Björgunarsveitinni Oki nýjan slöngubát að gjöf

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Fyrirtækið Sportbátar er meðal annars umboðsaðili fyrir Zodiac og Bombard slöngubáta. Forsvarsmenn þeirra ákváðu að færa Björgunarsveitinnni Oki í Borgarfirði Zodiac slöngubát að gjöf. Mun hann nýtast vel í leit, björgun og á æfingum sveitarinnar. Slöngubáturinn er 4.7 metrar á lengd, hefur 2-3 í áhöfn og hentar fyrir 40 hestafla mótor. Hann getur borið meira en 10 einstaklinga í neyð og auðvelt er að setja hann á flot við ýmsar aðstæður.\r\n\r\nStjórn Oks hafði nýlega ákveðið að festa kaup á nýjum slöngubát til að leysa eldri bát sveitarinnar af. Kemur þessi gjöf því á verulega heppilegum tíma. Báturinn mun koma að góðum notum á svæði björgunarsveitarinnar sem er með bækistöðvar sínar í Reykholti í Borgarfirði. Útköll hennar eru fjölbreytt, til dæmis á ám, vötnum og sjó en einnig koma reglulega upp beiðnir um aðstoð í öðrum landshlutum.\r\n\r\nLúther Gestsson, framkvæmdastjóri Sportbáta, afhenti Jóhannesi Berg, formanni björgunarsveitarinnar Ok bátinn nú á dögunum. Að sögn Jóhannesar er fleyið nú komið á sinn stað í Reykholti og verið er að setja það saman og blása upp. Því næst er prófanir fyrirhugaðar, áður en vötn taka að frjósa.\r\n\r\nÍ tilkynningu á síðu Landsbjargar segir að björgunarsveitarmenn séu afar þakklátur fyrir höfðingjalega gjöf Sportbáta og telji mikilvægt að endurnýja tæki sveitarinnar áður en þau verða úrelt, til að viðhalda öryggi félaga þar sem oft er unnið við erfiðar aðstæður. Báturinn muni vafalaust koma að góðum notum fyrir Björgunarsveitina Ok. Hún er ein þriggja borgfirskra björgunarveita sem sinna stóru landssvæði. Hinar tvær eru Björgunarsveitin Brák í Borgarnesi og Björgunarsveitin Heiðar í Stafholtstungum.",
  "innerBlocks": []
}
Sportbátar færa Björgunarsveitinni Oki nýjan slöngubát að gjöf - Skessuhorn