Þessi hópur býr til límmiða og fleira með hvetjandi slagorðum í Lífsnámsviku.

Opið hús í MB í dag: Afrakstur Lífsnámsviku sýndur

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Lífsnámsviku lýkur í dag í Menntaskóla Borgarfjarðar. Þar hafa nemendur starfað í hópum og unnið að heilsutengdum verkefnum, en opið hús er í skólanum kl.16-17:30 í dag fimmtudag, þar sem afrakstur vikunnar er sýndur. Skólinn hefur stundað ákveðið frumkvöðlastarf á sviði menntunar og námið þar verið í stöðugri þróun frá upphafi skólans. Lífsnámsáfangarnir eru afrakstur vinnu Signýjar Óskarsdóttur, verkefnastjóra við skólann, en hún leiddi starf þar sem rýnihópar úr MB og grunnskólum á Vesturlandi voru spurðir hvað þeim fyndist vanta í nám. Niðurstaða þeirrar vinnu er Lífsnámsvikan. Blaðamaður Skessuhorns leit við hjá MB og fékk fræðslu um verkefnið frá Elínu Kristjánsdóttur námsráðgjafa.\r\n\r\n<strong>Fjármál, heilsa og kynfræðsla\r\n</strong>Lífsnámsáfangarnir eru fimm talsins, en einn áfangi er kenndur á hverri önn í eina viku í senn. Þannig fara allir nemendur skólans í alla áfangana. ,,Allir staðnemar skólans eru skráðir í þessa áfanga en við byrjuðum á síðustu vorönn á áfanga sem hét Allskyns, það er kynfræðsla, kynvitund og allt sem fellur undir þetta hugtak. Þessi áfangi sem við erum í núna heitir Geðheil og þar er áhersla á andlega og líkamlega heilsu. Á næstu önn ætlum við að læra um sjálfbærni og heimsmál, þar á eftir kemur fjármálalæsi og síðasti áfanginn snýr svo að mannréttindum, lýðræði og jafnrétti. Krakkarnir sem eru að byrja núna í framhaldsskólanum fara í gegnum alla fimm áfangana og svo byrjum við aftur þannig að á námstímanum eiga allir að fara í þessa fimm áfanga,“ segir Elín.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_57159\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-57159 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/10/MB_elin-600x446.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"446\" /> Elín Kristjánsdóttir, námsráðgjafi MB, fræddi blaðamann Skessuhorns um Lífsnámsviku.[/caption]\r\n\r\n<strong>Nemendur vinna í hópum\r\n</strong>Kennarar skólans útbúa verkefnalýsingar sem falla undir þema vikunnar. Nemendum er svo skipað í hópa sem velja sér verkefni úr smiðju kennaranna. ,,Kennararnir búa til verkefnalýsingu sem nemendurnir svo velja sér og fleiri en einn hópur getur verið með sama verkefni. Síðan bara byrja þau að vinna og þau draga um vinnusvæði og vinna vítt og breitt um húsið. Hver hópur á sinn stað sem þau ganga að alla vikuna og fá leiðsögn kennarans sem hannaði þeirra verkefni,“ segir Elín.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_57160\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-57160 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/10/MB_3-600x450.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"450\" /> Þessar stúlkur útbúa heimasíðu þar sem finna má uppskriftir. Þær reikna einnig út næringargildi hverrar uppskriftar.[/caption]\r\n\r\n<strong>Emmsjé Gauti hélt örtónleika</strong>\r\nNemendur byrja þó alla daga á að hreyfa sig en ýmis uppbrot eru á verkefnavinnunni. ,,Þau velja sér stutta hreyfingu á hverjum morgni, við erum með jóga og slökun, körfubolta, göngutúr og einnig hægt að fara í ræktina. Svo fá þau fræðsluerindi sem innlegg í umræðuna, t.d. komu aðilar frá Geðhjálp og Rauða krossinum með fyrirlestraröð sem kallast ,,Geðlestin“ og er Emmsjé Gauti partur af því teymi og hélt örtónleika eftir fyrirlesturinn. Svo kom til okkar hópur sem heitir Heil Heilsumiðstöð. Vikan endar svo á opnum degi þar sem nemendur sýna afrakstur sinn.“\r\n\r\n[caption id=\"attachment_57161\" align=\"alignnone\" width=\"300\"]<img class=\"wp-image-57161 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/10/MB_4-600x450.jpg\" alt=\"\" width=\"300\" height=\"225\" /> Þessir drengir hanna heimaæfingakerfi sem hentar öllum.[/caption]\r\n\r\n<strong>Uppskriftarsíður, æfingakerfi og slagorðavinna</strong>\r\nMeðal verkefna sem nemendur vinna er heimasíða með næringargóðum uppskriftum, heimaæfingakerfi, skipulagður gönguhringur og fleira. ,,Krakkarnir eru að gera mjög flotta vinnu, einn hópurinn er t.d. í slagorðavinnu en þau eru að nota Kviku til að búa til límmiða og ýmislegt fleira. Svo er Geðhringur eitt verkefnið þar sem nemendurnir eru að hanna gönguhring í Borgarnesi og eru í raun að gera æfingarplan sem er í leiðinni andleg íhugun. Þau eru með QR kóða þar sem þú getur hlustað á heilræði á göngunni. Svo er uppskriftasíða þar sem búið er að reikna næringargildi uppskriftanna og einn hópurinn er að hanna æfingakerfi með heimaæfingum fyrir alla. Þannig það er mjög spennandi að sjá afrakstur þessarar viku,“ segir Elín.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_57162\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-57162 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/10/MB_5-600x450.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"450\" /> Þessi hópur vinnur að verkefninu Geðhringur, þau útbúa gönguhring um Borgarnes þar sem hlusta má á heilræði á göngu sem finna má með QR kóðum.[/caption]",
  "innerBlocks": []
}
Opið hús í MB í dag: Afrakstur Lífsnámsviku sýndur - Skessuhorn