Það var þétt setið á Kaffi59 þegar viðburðurinn Bjór og Sálmar var í gangi á Rökkurdögum. Ljósm. þgj
Líflegt haust í landshlutanum
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Ekki skortir menningu, fjör og mannlíf í byggðakjörnum Vesturlands þennan mánuðinn. Ýmsar hausthátíðir standa yfir þessa dagana og nóg er um að vera.\r\n\r\nUm helgina er menningarhátíðin Norðurljósin í Stykkishólmi og Haustfagnaður sauðfjárbænda í Dölum. Í vikunni þar eftir hefjast svo Vökudagar á Akranesi sem er tíu daga menningar- og listahátíð. Þá lauk menningarhátíðinni Rökkurdögum í Grundarfirði síðastliðið sunnudagskvöld en þar var sneisafull dagskrá alla síðustu viku. Blaðamaður tók púlsinn á forsvarsmönnum þessara hátíða og var það sammerkt með þeim öllum að góð stemning og gleði væri einkennandi í þeirra samfélagi.\r\n\r\nNorðurljósin menningarhátíð í Stykkishólmi 20.-23. október\r\nNorðurljósahátíð í Stykkishólmi hefst í dag, fimmtudaginn 20. október, og stendur yfir alla helgina, hún er nú haldin í sjötta sinn. Þar er fjölbreytt úrval viðburða, t.a.m. gestalistamenn í Gallerí Bragga, Loppumarkaður í Tónlistarskólanum, Spilakvöld á Narfeyrarstofu, Hrekkjavökustemning í Ásbyrgi og Tónleikar með Mugison á Fosshótel Stykkishólmi. Enginn ætti að vera svangur í bænum þessa helgi: Litháenskt og pólskt smakk verður á kaffihúsinu Sjávarborg, Lionskonur selja grænmetissúpu og brauð í Lionshúsinu á Frúarstíg, Narfeyrarstofa kynnir til leiks nýjan matseðil, sérstakur Norðurljósahátíðarseðill er á Fosshótel Stykkishólmi þessa helgi og tíu rétta smakkseðill á Sjávarpakkhúsinu, svo eitthvað sé nefnt.\r\n\r\nHátíðin er haldin annað hvert ár í kringum fyrsta vetrardag en hún datt upp fyrir árið 2020 vegna óviðráðanlegra ástæðna. „Stemningin í bænum fyrir hátíðinni er mjög góð. Það eru margir sem fá gesti heim um helgina og svo eru líka brottfluttir Hólmarar sem líta hér við. Það er opnunarhátíð í kirkjunni í kvöld þar sem verða til að mynda fjölbreytt tónlistaratriði og veittar ýmsar viðurkenningar. Það verða samt nokkrir viðburðir fyrr um daginn eins og Ljósahátíð,“ segir Hjördís en sú hátíð er samvinnuverkefni nemenda leikskólans og nemenda yngri bekkja grunnskólans þar sem kveikt verður á kertum í krukku og þeim raðað upp í stóran hring. Markmiðið er að lýsa upp myrkrið og eiga saman fallega stund í nafni vináttu og kærleika.\r\n\r\nHjördís segir engan eiginlegan hápunkt vera á hátíðinni en tónlistarviðburðir hafi alltaf slegið í gegn. Á laugardagskvöldið verða tvennir stofutónleikar í Vinaminni og aðrir tvennir tónleikar í gömlu kirkjunni. Það má því segja að tónlistin verði við völd það kvöldið.\r\n\r\nÞá er Norska húsið 190 ára í ár, þar er Byggðasafn Snæfellinga og Hnappdæla staðsett og verður því margt um að vera í safninu um helgina. Þar verður hægt að skreyta sinn eigin bolla á föstudaginn, á laugardaginn verður þar pop up verslun og á sunnudeginum verður kaffikynning frá Kaffibrennslunni Valeriu í Grundarfirði og kíkir spákona í bollana að lokinni kynningu. Dagskrána má sjá í heild sinni á <a href=\"http://www.visitstykkisholmur.is\">www.visitstykkisholmur.is\r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"medium\" ids=\"57073,57074\"]\r\n\r\nHaustfagnaður Félags sauðfjárbænda í Dalasýslu 21.-22. október\r\nFélag Sauðfjárbænda í Dölum efnir til Haustfagnaðar um komandi helgi, 21.-22. október. Dagskráin er heldur minni í sniðum núna en hún hefur verið, að síðustu tveimur árum undanskildum. Svavar Magnús Jóhannsson, formaður FSD segir ástæðuna vera þá að félagið sé að þreifa fyrir sér eftir heimsfaraldurinn. „Við erum bara að prufa okkur áfram eftir Covid. Við erum að fara rólega af stað með þetta og ætlum að sjá hvernig mætingin verður og hvort fólk sé ef til vill enn þá hrætt við Covid.“ Haustfagnaður FSD er árlegur viðburður og í ár samanstendur dagskráin af heimsóknum á Sauðfjárbú þar sem fólki gefst kostur á að líta augum best dæmdu lambhrúta Dalasýslu. Þá verður uppskeruhátíð og verðlaunaafhending þar sem veitt verða verðlaun fyrir bestu lambhrútana, bestu ærnar og bestu gimbrarnar. Hljómsveitin Allt í einu leikur svo fyrir dansi á laugardagskvöldið og langt fram á nótt. „Hápunktur helgarinnar er klárlega uppskeruhátíðin þar sem við veitum verðlaun í fjölmörgum flokkum.\"\r\n\r\nVinsælir viðburðir eins og Íslandsmót í rúningi og Sviðaveisla verða ekki haldin í ár. „Það var tekin ákvörðun um að prófa að halda Íslandsmótið í öðrum landshlutum. Það var farin að vera heldur dræm mæting meðal keppenda svo nú verður mótið haldið á öðrum stað til að sjá hvort mætingin verði betri,“ segir Svavar. - En hvað með sviðaveisluna? „Við höfum alveg fengið nokkrar kvartanir yfir því að það sé ekki sviðaveisla því það hefur alltaf verið frekar vinsæll viðburður hjá okkur. En mætingin var samt farin að slappast svo við erum jafnvel að skoða það að hafa sviðaveislu annað hvert ár núna. En það er ekkert ákveðið. Annars eru nokkrir búnir að spyrja hvort það verði þá ekki svið í boði á uppskeruhátíðinni,“ segir Svavar og hlær. Það verði þó ekki á boðstólum þar að sinni.\r\n\r\nSvavar segir góða stemningu vera fyrir ballinu á laugardagskvöldið, það sé þónokkuð af fólki búið að melda sig á það nú þegar. Hann hvetur fólk til að koma á ballið, skemmta sér og hafa gaman.\r\nDagskrána má sjá í heild sinni á <a href=\"https://www.facebook.com/FelagsaudfjarbaendaIDalasyslu\">Facebook-síðu FSD.\r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"medium\" ids=\"57075,57076\"]\r\n\r\nVökudagar á Akranesi 27. október – 6. nóvember\r\nVökudagar er menningar- og listahátíð sem haldin er á Akranesi dagana 27. október – 6. nóvember. Hátíðin hefur verið haldin á Akranesi um árabil og fer stækkandi með hveru ári að sögn Sigrúnar Ágústu Helgudóttur, verkefnastjóra Vökudaga. „Það er ótrúlega góð þátttaka í ár. Þetta er tíu daga hátíð þar sem eru auglýstir opnir viðburðir eins og tónleikar, uppistandssýningar og myndlistarsýningar. Margir listamenn taka þátt með sýningum eða opnum vinnustofum og allir leik- og grunnskólarnir í bænum taka þátt með einhverjum hætti,“ segir Sigrún en hún segir Vökudaga vera eins konar hápunkt listamanna á Akranesi en það eru margir listamenn sem vinna statt og stöðugt að verkum til þess að sýna á hátíðinni.\r\n\r\nÍ Covid skapaðist sú hefð að hafa listagöngu á setningu Vökudaga, 27. október. Það heppnaðist einkar vel og sá viðburður virðist kominn til að vera. „Þetta er að vinda upp á sig en nú eru 15 listamenn með opnar sýningar og vinnustofur þetta kvöld og fólk getur rölt þar á milli. Það hefur skapast mjög góð stemning í bænum fyrir þessum viðburði,“ segir Sigrún. Á setningu Vökudaga eru líka veitt hin árlegu menningarverðlaun Akraness. Þar er það menningarmálanefnd, með samþykki bæjarstjórnar, sem velur úr tilnefningunum og formaður nefndarinnar afhendir verðlaunin.\r\n\r\nTónlistarhátíðin Heimaskagi og viðburðurinn Veturnætur hafa vakið mikla lukku á Vökudögum síðustu ár. „Veturnætur er viðburður sem byggðasafnið í Görðum stendur fyrir og Auður Líndal hefur haldið utan um síðustu ár. Þetta er hryllingsvölundarhús sem er opið á Hrekkjavöku, 31. október, það hefur vakið mikla lukku en í fyrra mættu þangað 2500 manns,“ segir Sigrún. Heimaskagi er aftur á móti tónlistarhátíð sem Óli Palli heldur utan um. Þar er fjöldinn allur af tónlistarmönnum sem koma á Akranes og spila fyrir fólk í heimahúsum. Þá eru ákveðnir íbúar í bænum sem opna heimili sitt fyrir gestum og tónlistarmönnum eina kvöldstund, þann 5. nóvember. Fyrstu tónlistarmennirnir stíga á stokk klukkan 20:00 og þeir síðustu enda um klukkan 23:00. Þeir sem eru hvað duglegastir að ganga á milli húsa geta því séð fjölmörg atriði.\r\n\r\nDagskrá Vökudaga er að taka á sig lokamynd og verður hún borin út í hús á Akranesi strax eftir helgi auk þess sem hún verður auglýst í Skessuhorni. Í ár er dagskráin með öllum upplýsingum átta blaðsíðna bæklingur og getur það gefið íbúum til kynna hve margir viðburðir eru í boði. Inni á vefnum <a href=\"http://www.skagalif.is\">www.skagalif.is er líka hægt að sjá yfirlit yfir viðburði hátíðarinnar.\r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"medium\" ids=\"57077,57078\"]\r\n\r\nAfstaðnir Rökkurdagar í Grundarfirði\r\nMenningarhátíðin Rökkurdagar, sem haldin var 9.-16. október, er árlegur viðburður í Grundarfirði og hefur verið síðan 2001. Hátíðin er alltaf haldin í október eða nóvember, þegar rökkrið læðist að og segir Þuríður Gía Jóhannesdóttir starfsmaður Menningarnefndar Grundarfjarðarbæjar að tilgangur hátíðarinnar sé einna helst að stytta fólki stundirnar og ýta undir samveru í þessum dimmu mánuðum. „Við hvetjum fólk til að setja seríur í glugga, fara saman út að ganga og njóta samveru með fólkinu í kringum sig því þessi tími árs getur verið erfiður fyrir suma. Það má segja að með hátíðinni séum við að leita að ljósinu í rökkrinu og eiga góðar stundir saman,“ segir Þuríður.\r\n\r\nHátíðin hefur síðustu ár staðið allt frá viku og upp í þrjár, en í ár var dagskráin þétt pökkuð niður á eina viku. Þar voru ýmiss konar listviðburðir, ljósaganga vonar, kyrrðarstund í Kirkjugarðinum, karókí-kvöld og Rökkursund þar sem spilaðir voru ljúfir tónar í sundlaug Grundarfjarðar. Þuríður segir hátíðina hafa gengið vel fyrir sig og að bæjarbúar séu virkir í að taka þátt og búa til viðburði. „Nemendur í grunnskólanum voru með Rökkurquiz sem var mjög vel sótt, þetta var svona fjölskyldustund og flottir vinningar í boði. Svo var UMFG með skemmtilegan fyrirlestur um hamingju í vinnu og lífi.“ Það sem hafi þó staðið upp úr var viðburðurinn Bjór og Sálmar, sem haldinn var nú í fyrsta sinn. „Það var Aðalsteinn Þorvaldsson sem sá um viðburðinn með Lindu Maríu og Mána organista. Það var fullt af fólki sem mætti á Kaffi59, fékk sér bjór og hlustaði eða söng með þegar spilaðir voru þekktir sálmar og það myndaðist mjög góð stemning,“ segir Þuríður en dagskráin endaði svo á bleikri messu í Grundarfjarðarkirkju síðasta sunnudag.\r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"medium\" ids=\"57079,57080,57081\"]",
"innerBlocks": []