Cheah Rael Whitsitt átti góðan leik á móti Hamar/Þór. Ljósm. espn.com

Snæfell enn á sigurbraut

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Snæfell tók á móti Hamar/Þór í 1. deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi og fór leikurinn fram í Stykkishólmi. Leikurinn fór rólega af stað en í stöðunni 5:6 náðu gestirnir góðum spretti og skoruðu tíu stig gegn aðeins tveimur stigum Snæfells, staðan 7:16 fyrir Hamar/Þór eftir rúman fimm mínútna leik. Snæfellskonur voru þó fljótar til að ná að jafna leikinn, þær skoruðu níu stig í röð og staðan jöfn 16:16 þegar þrjár mínútur voru eftir. Snæfell átti síðan síðasta orðið og leiddi með fimm stigum við lok fyrsta leikhluta, staðan 24:19. Staðan breyttist lítið í öðrum leikhluta og stigaskor liðanna alls ekki til eftirbreytni því alls voru skoruð ellefu stig samtals og ekkert síðustu rúmar þrjár mínúturnar, staðan í hálfleik 29:25 fyrir Snæfelli.\r\n\r\nBaráttan var ennþá til staðar í þriðja leikhluta og Hamar/Þór náði að halda í við Snæfell, staðan 38:34 þegar tæpar fjórar mínútur voru eftir. En þá náði Snæfell góðum kafla og leiddi með tíu stigum fyrir fjórða leikhluta, staðan 46:36. Þær náðu síðan fimmtán stiga forystu fljótlega í leikhlutanum og staðan orðin ansi erfið fyrir gestina. Hamar/Þór náði síðan ekki að ógna forskoti Snæfells að neinu marki, það sem eftir lifði leiks var munurinn alltaf í kringum tíu stigin og Snæfell vann að lokum öruggan sigur, lokatölur 63:54. Fimmti sigur Snæfells í röð í deildinni og þær eru núna í efsta sætinu ásamt liði Stjörnunnar með tíu stig en Stjarnan hefur leikið einum leik minna.\r\n\r\nAtkvæðamest hjá Snæfelli var framherjinn Cheah Rael Whitsitt sem var með 25 stig, 23 fráköst og 7 stoðsendingar, Rebekka Rán Karlsdóttir var með 12 stig og Preslava Koleva með 7 stig og 14 fráköst. Hjá Hamar/Þór var Jenna Mastellone með 21 stig, Emma Hrönn Hákonardóttir með 10 stig og Stefanía Ósk Ólafsdóttir með 8 stig.\r\n\r\nNæsti leikur Snæfells í deildinni er næsta miðvikudag gegn Aþenu/Leikni/UMFK í Austurbergi í Breiðholti og hefst klukkan 19.15.",
  "innerBlocks": []
}
Snæfell enn á sigurbraut - Skessuhorn