
Lilja og Ólöf Rún í útgáfuhófinu. Ljósm. sgm.
Lífið var einfalt og skemmtilegt en stundum hættulegt
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í september kom út bókin <em>Gaddavír og gotterí</em> eftir Lilju Magnúsdóttur. Lilja er Borgfirðingur og ólst upp á Stað í Borgarhreppi og á Hraunsnefi í Norðurárdal. Hún stundaði nám á Varmalandi og fór síðan í Reykholt en eftir það lá leiðin til Reykjavíkur þar sem hún fór í íslensku í Háskóla Íslands, tók kennararpróf og seinna meistaranám í ritstjórn og útgáfu. Lilja var íslenskukennari við Menntaskólann í Kópavogi í mörg ár en hefur síðustu ár búið á Kirkjubæjarklaustri. Hún sendi frá sér spennusöguna Svikarann árið 2018.\r\n\r\nÍ bókinni Gaddavír og gotterí eru tíu sögur og fylgir mynd hverri sögu. Forsíðumyndina teiknaði Sigríður Ævarsdóttir á Gufuá. Hún teiknaði fleiri myndir og eru þær auðþekkjanlegar og minna á myndir hennar í bókinni <em>Tölum um hesta</em> sem þau hjón, Sigga og Benni, gáfu út fyrir stuttu. Aðrar myndir í <em>Gaddavír og gotterí</em> eru eftir Ólöfu Rún Benediktsdóttur, dóttur höfundar. Ólöf Rún nam myndlist við Listaháskóla Íslands og hefur einnig stundað nám í söng, tónsmíðum og hljóðvinnslu.\r\n\r\nSögurnar eru byggðar á minningum Lilju frá því að fjölskyldan átti heima á Stað. Það var alltaf eitthvað að gerast. Krakkanir fengu að hafa hestana eins og þeim hentaði þó miklar hundakúnstir þyrfti til að beisla og komast á bak. Lífið í sveitinni fylgdi því sem verið var að gera á búinu; það þurfti að rýja og keyra á fjall, tína ber, fara í réttir og lenda næstum því í stórslysi. Svo var það rafmagnsleysið þegar veðrið var snarvitlaust. Þegar fjölskyldan átti frí var skroppið til ömmu og afa. Flest sem krakkarnir taka sér fyrir hendur er skemmtilegt en líka stundum hættulegt.\r\n\r\nEfni bókarinnar er kunnuglegt öllum sem þekktu til í sveitum fyrir nokkrum áratugum en mjög ólíkt þeim veruleika sem við þekkjum í dag. Lilja er kennari og segir að sögurnar hafi orðið til þegar hún var að reyna að útskýra fyrir nemendum hvernig lífið var þegar hún var lítil. Nemendur áttu erfitt með að sjá fyrir sér hvað krakkar voru að gera allan daginn heima hjá sér án allra þeirra tækja sem til eru í dag, án leikskóla, tónlistarnáms eða íþróttaæfinga.\r\n\r\nLilja Magnúsdóttir gefur bókina út sjálf í samstarfi við Bókasamlagið. Bókina má kaupa hjá höfundi en hún er líka komin í bókabúðir Pennans Eymundsson og fæst í vefverslun Bókasamlagsins.\r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"medium\" ids=\"57068,57069\"]",
"innerBlocks": []
}