{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Systkinin Eva Karen Þórðardóttir og Þorsteinn Pálsson hafa fest kaup á Borgarsporti, verslun í Hyrnutorgi í Borgarnesi. Opnunarhóf verður næsta laugardag frá klukkan 16 til 19 og breytingar eru fyrirhugaðar á útliti búðarinnar og vöruúrvali. ,,Borgarsport verður staður fyrir þig ef þú vilt hefja þína heilsuvegferð, hvort sem það er að stunda útihlaup, mæta í ræktina eða ganga á fjöll. Þú getur komið til okkar og fengið græjur, pepp eða fæðubótarefni. Borgarsport hefur fengið ,,make over“ og hlökkum við mikið til að sýna ykkur nýja útlitið og nýju vörumerkin sem við erum að taka inn. Við verðum með breiða línu af vörumerkjum og munum bæta við eftir þörfum og eftirspurn. Við sjáum fyrir okkur svona konsept þar sem allir verða svakalega mótiveraðir þegar þeir labba út úr Borgarsporti. Hér mun vera allt til alls en ég er t.d. íþróttafræðingur og fólk á að geta fengið góða ráðgjöf varðandi vörur og hreyfingu ásamt mikilli hvatningu,“ segir Eva Karen í samtali við Skessuhorn.",
"innerBlocks": []
}