Fréttir

true

Smáréttingar hafa opnað á Akranesi

Smáréttingar ehf. er fyrirtæki sem stofnað var á Akranesi árið 2004 en hefur allt frá upphafi aðallega starfað á höfuðborgarsvæðinu. Fyrirtækið sérhæfir sig í því að þjónusta bíleigendur með lagfæringum á smádældum og rispum á bifreiðum, fyrirhafnarlítið og án málunar, en býður einnig upp á alls konar lausnir í yfirborðsmeðhöndlun og vörn bifreiða. Eigandi og…Lesa meira

true

Söfnuðu 35 milljónum fyrir Umhyggju

Um síðustu helgi afhentu hjólreiðamenn og aðstoðarfólk í Team Rynkeby á Íslandi félagi langveikra barna, Umhyggju, rúmlega 35 milljónir króna en það er söfnunarfé árlegrar söfnunarferðar þeirra. Um er að ræða eitt stærsta góðgerðarverkefni í Evrópu og hefur það verið í gangi hér á landi síðan 2017. Þetta er hins vegar hæsta upphæðin sem safnast…Lesa meira

true

Konur í fyrsta sinn í meirihluta í sveitarstjórnum á landsvísu

Haustþing Sambands sveitarfélaga á Vesturlandi var haldið á Fosshóteli í Stykkishólmi í síðustu viku. Þar voru saman komnir sveitarstjórnarfulltúar af öllu Vesturlandi og starfsfólk SSV ásamt ræðumönnum, en þema þingsins var samskipti ríkis og sveitarfélaga. Til máls tóku þeir Aðalsteinn Þorsteinsson skrifstofustjóri innviðaráðuneytis, Stefán Vagn Stefánsson fyrsti þingmaður Norðvesturkjördæmis, Haraldur Benediktsson þingmaður Norðvesturkjördæmis og Karl…Lesa meira

true

Brennur fyrir jöfnuði og velferð barna

Arnbjörg Stefánsdóttir er jafnréttissinni, húmoristi og amma og hefur auk þess verið skólastjóri Brekkubæjarskóla á Akranesi í 16 ár. Hún flutti með fjölskyldu sína til Akraness frá Höfn í Hornafirði árið 2005 þegar hún fékk starf sem aðstoðarskólastjóri við skólann en tilviljun réði því að hún sótti um það starf. Blaðamaður Skessuhorns kíkti á skrifstofuna…Lesa meira

true

„Ekki sjálfgefið að komast upp úr þessari deild“

Rætt við Guðjón Þórðarson þjálfara Víkings um nýlokið tímabil Víkingur Ólafsvík varð í sjöunda sæti í 2. deild karla í knattspyrnu í sumar með 28 stig, vann sjö leiki, gerði sjö jafntefli og tapaði átta leikjum. Liðið hafði leikið í Lengjudeildinni síðustu fjögur ár en lék í fyrsta skipti í 2. deild frá árinu 2010.…Lesa meira

true

Skorradalshreppur mun kæra Skógræktina

Á fundi hreppsnefndar Skorradalshrepps 22. september síðastliðinn voru m.a. til afgreiðslu fundargerðir skipulags- og byggingarnefndar hreppsins frá því fyrr í sumar. Í fundargerð nefndarinnar frá 22. ágúst var fjallað sérstaklega um meintar óleyfisframkvæmdir Skógræktarinnar á jörðunum Stóru-Drageyri og Bakkakoti á svæði þar sem aðalskipuleg gerir ekki ráð fyrir að skógrækt sé stunduð. Hreppsnefnd lét eins…Lesa meira

true

Rútuöngþveiti á höfninni

Þriðjudaginn 20. september síðastliðinn kom skemmtiferðaskipið Island Princess og lagðist að ytri höfninni í Grundarfirði. Á meðfylgjandi mynd, sem er tekin rétt áður en fyrstu farþegarnir stigu í land, má sjá að allir eru tilbúnir til að taka á móti ferðamönnunum. Gula Kirkjufell Express rútan bíður átekta á meðan fjöldi hópferðabíla voru tilbúnir að aka…Lesa meira

true

Kveðju- og innsetningarmessa í Borgarneskirkju

Kveðjumessa séra Þorbjörns Hlyns Árnasonar og innsetningarmessa séra Heiðrúnar Helgu Bjarnadóttur var í Borgarneskirkju síðastliðinn sunnudag. Tekur Heiðrún Helga nú við starfi prests í Borgarprestakalli. Fjöldi fólks sótti athöfnina þar sem sr. Þorbjörn Hlynur þjónaði fyrir altari ásamt sr. Önnu Eiríksdóttur sóknarpresti í Stafholti. Í ræðu sinni þakkaði hann samstarfsfólki sínu þau rúm fjörutíu ár…Lesa meira

true

Háskólinn á Bifröst hlýtur 64 milljóna króna styrk

Háskólinn á Bifröst er aðili að nýju alþjóðlegu rannsóknarverkefni sem heitir IN SITU en það er verkefni sem er styrkt af Horizon, sjóði framkvæmdarstjórnar Evrópusambandsins. Samstarfsaðilar Háskólans á Bifröst á Íslandi í IN SITU eru Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) og Breið þróunarfélag en að verkefninu koma í heild sinni 13 samstarfsaðilar frá 12 löndum.…Lesa meira

true

Bátur sökk í Stykkishólmi

Báturinn Páll Helgi ÍS sökk við Skipavíkurbryggju í Stykkishólmi í óveðrinu sem reið yfir um síðustu helgi. Kjartan Kjarvalsson hafnarvörður sagði í samtali við Skessuhorn í dag, að verið væri að hífa bátinn upp. ,,Þetta er gamall trébátur og var hann ónýtur fyrir. Þegar gerir vestanátt eru bátar við þessa bryggju í hættu en þetta…Lesa meira