Sveitarstjórnarfulltrúar af öllu Vesturlandi sóttu Haustþing SSV. Ljósm. sþ.

Konur í fyrsta sinn í meirihluta í sveitarstjórnum á landsvísu

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Haustþing Sambands sveitarfélaga á Vesturlandi var haldið á Fosshóteli í Stykkishólmi í síðustu viku. Þar voru saman komnir sveitarstjórnarfulltúar af öllu Vesturlandi og starfsfólk SSV ásamt ræðumönnum, en þema þingsins var samskipti ríkis og sveitarfélaga. Til máls tóku þeir Aðalsteinn Þorsteinsson skrifstofustjóri innviðaráðuneytis, Stefán Vagn Stefánsson fyrsti þingmaður Norðvesturkjördæmis, Haraldur Benediktsson þingmaður Norðvesturkjördæmis og Karl Björnsson framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga. Guðveig Eyglóardóttir, formaður stjórnar SSV setti þingið sem hófst á kynningu Páls Brynjarssonar framkvæmdastjóra.\r\n\r\nKarl Björnsson, framkvæmdarstjóri Sambands íslenskra sveitarfélega, fór á þinginu yfir stöðu hvers sveitarfélags í landshlutanum. Greindi hann frá því að í fyrsta skipti séu konur í meirihluta sveitarstjórnarfólks í landinu en hlutfall kvenna í sveitarstjórnum er 50,4% árið 2022. Til samanburðar var hlutfallið 20% árið 1998. Karl kom sérstaklega inn á slæma fjárhagsstöðu sveitarfélaganna í landinu og greindi hann frá miklum halla í rekstri þeirra. Hann sagði óhjákvæmilegt að ríkið þurfi að grípa inn í en starfshópur var skipaður á árinu sem skoðar nú málaflokkinn en ekki virðist vera gert ráð fyrir aukningu í fjárlögum næsta árs. Starfshópurinn mun þurfa að skila af sér skýrslu 1. desember næstkomandi. Að lokum lýsti Karl yfir áhyggjum sínum af málefnum fólks með fötlun sem virðast einnig vera fjársveltur málaflokkur í fyrstu drögum fjárlaga fyrir næsta ár.\r\n\r\nHelstu málaflokkar Haustþings SSV voru samgöngur og inniviðir, atvinnu- og umhverfismál, opinber þjónusta og menning. Haustþingið sendi frá sér ýmsar áskoranir til ríkisins og skorar m.a. á Vegagerðina að ljúka veghönnun og allri undirbúningsvinnu við tvöföldun vegar frá Hvalfjarðargöngum í Borgarnes ásamt því að leggja þunga áherslu á að framkvæmdir við Sundabraut hefjist eigi síður en árið 2026. Þingið mæltist einnig til þess að fjölga opinberum störfum á Vesturlandi, skapa sterkara aðgengi að menntun á háskóla- og menntaskólastigi ásamt fjölgun starfstækifæra fólks með skerta starfsgetu.",
  "innerBlocks": []
}
Konur í fyrsta sinn í meirihluta í sveitarstjórnum á landsvísu - Skessuhorn