
Frá vinstri: Pálmi Jóhannsson, Gunnar Bjarki Rúnarsson og Þórhallur Matthíasson. Ljósm. Jóhanna Vigdís Pálmadóttir.
Söfnuðu 35 milljónum fyrir Umhyggju
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Um síðustu helgi afhentu hjólreiðamenn og aðstoðarfólk í Team Rynkeby á Íslandi félagi langveikra barna, Umhyggju, rúmlega 35 milljónir króna en það er söfnunarfé árlegrar söfnunarferðar þeirra. Um er að ræða eitt stærsta góðgerðarverkefni í Evrópu og hefur það verið í gangi hér á landi síðan 2017. Þetta er hins vegar hæsta upphæðin sem safnast hefur í verkefninu hér á landi og eru talsmenn Umhyggju að vonum í skýjunum með styrkinn. Í tilkynningu sem Umhyggja sendi frá sér á Facebook stendur: „Við hjá Umhyggju erum bæði þakklát og meyr… Þær rúmlega 35 milljónir sem þessir öðlingar söfnuðu með aðstoð fyrirtækja og almennings munu renna til rannsóknartengdra verkefna sem ætlað er að bæta líf langveikra barna með einum eða öðrum hætti.“\r\n\r\nTeam Rynkeby Ísland hópurinn samanstendur í ár af 41 hjólreiðamanni og tíu manna fylgdar- og aðstoðarliði og er þó nokkur fjöldi þátttakenda Vestlendingar. Hópurinn hjólaði í sumar, á átta dögum, um 1.300 kílómetra leið frá Kolding í Danmörku til Parísar í Frakklandi og fór þá sem leið lá um Þýskaland, Belgíu og Holland og söfnuðu í leiðinni 35 milljónum með aðstoð styrktaraðila. Þátttakendur sjá sjálfir um allan kostnað sem til fellur vegna ferðalagsins og rennur því söfnunarféð óskert og beint til málstaðarins.\r\n\r\n[gallery columns=\"1\" size=\"large\" ids=\"56571\"]",
"innerBlocks": []
}