Fréttir

true

Þrjú ný fjölbýlishús skipulögð í Borgarnesi

Gert er ráð fyrir þremur nýjum fjölbýlishúsum ásamt íbúðarhúsum á nýrri deiliskipulagstillögu sem auglýst var fyrir Dílatanga og nærsvæði í Borgarnesi í vor. Sveitarstjórn samþykkti tillöguna samhljóða á fundi sínum í síðustu viku, með þeim breytingum sem gerðar voru með tilliti til umsagna og athugasemda sem bárust á kynningartíma. Lóð og tvö ný hús heimiluð…Lesa meira

true

Framkvæmdir að hefjast við nýjan matskála í Vatnaskógi

Um miðjan ágúst tók Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra skóflustungu að nýjum matskála í sumarbúðunum í Vatnaskógi í Svínadal. Þar voru viðstaddir rúmlega hundrað drengir sem dvöldu í 13. flokki sumarsins, Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands, þingmenn og 150 aðrir gestir. Framkvæmdir hófust í fyrstu viku septembermánaðar og sjá fagmenn um verkið ásamt sjálfboðaliðum.…Lesa meira

true

Leggjast gegn gjaldtöku í þegar byggð og fjármögnuð göng

Andrea Ýr Arnarsdóttir, oddviti Hvalfjarðarsveitar, sendi innviðaráðuneytinu 5. ágúst sl. umsögn fyrir hönd sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar vegna fyrirætlunar ráðherra um gjaldtöku fyrir umferð í jarðgöngum. Sveitarstjórn hefur nú staðfest umsögnina, en í bókun sveitarstjórnar segir: „Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar tekur undir að þjóðfélagslegur ávinningur fylgi því að hafa góðar samgöngur og það sé hagur allra landsmanna að flýta…Lesa meira

true

Boða stofnfund Hollvinasamtaka Hamarshússins í Borgarnesi

Ákveðið hefur verið að efna til stofnfundar Hollvinasamtaka Hamarshússins í Borgarnesi. Verður fundurinn haldinn í Hamarshúsinu við golfvöllinn fimmtudaginn 22. september kl. 20.30. Þeir Guðmundur Eyþórsson og Ingimundur Ingimundarson eru skrifaðir fyrir stofnfundarboði, en þess má geta að Guðmundur átti hluta æsku sinnar í húsinu. Á fundinum verður m.a. borin upp tillaga að lögum félagsins…Lesa meira

true

Dýrara verður að fá nýja eign tengda við raforkukerfið

Umhverfis- orku-, og loftslagsráðuneytið hefur sett til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi um breytingu á raforkulögum nr. 65/2003. Frumvarpinu er ætlað að skýra lagaheimild dreifiveitna til að innheimta viðbótarkostnað sem tenging nýs viðskiptavinar hefur í för með sér svo hann falli ekki á aðra notendur dreifikerfis. Þannig er stefnu raforkulaga um gegnsæi í gjaldskrármálum og jafnræði…Lesa meira

true

Mikill meirihluti vill leigubremsu og leiguþak

Mikill meirihluti landsmanna, eða 72%, er hlynntur því að tekin verði upp leigubremsa á Íslandi. Leigubremsa er það kallað þegar gefið er út viðmið hversu mikið húsaleiga má hækka yfir tiltekið tímabil. Þetta kom fram í könnun sem Maskína gerði fyrir Samtök leigjenda á Íslandi. Aðeins 11% sögust vera fremur eða mjög andvíg því að…Lesa meira

true

Bókin um sönginn í Kjósinni

Kjósin er nágrannasvæði Vesturlands, sunnan Hvalfjarðar. Nú er komin út bók um samfélagið í Kjósinni á fyrri tímum í þessum dreifbýlishreppi sem telur um 300 íbúa auk fjölda fólks sem á sumarhús á svæðinu og dvelur þar mikið. En margt hefur breyst á síðastu hundrað árum eða svo í þessari sveit og því er rík…Lesa meira

true

Málþing um Þorstein frá Hamri

Laugardaginn 17. september verður haldið málþing um skáldið Þorstein frá Hamri í Hátíðasal Háskóla Íslands. Þar munu ellefu fyrirlesarar, jafnt rithöfundar sem fræðimenn, fjalla um framlag Þorsteins til íslenskrar tungu, bókmennta og þjóðlegra fræða. Flest erindin snúa að ljóðlist Þorsteins, enda er hann eitt merkasta ljóðskáld þjóðarinnar fyrr og síðar, en skáldsögur hans og framlag…Lesa meira

true

Meira um framkvæmdir við Deildartunguhver

Í byrjun mánaðarins birtum við frétt þess efnis í Skessuhorni að framkvæmdir hafa staðið yfir við umhverfi og aðkomu að Deildartunguhver í Borgarfirði. Sindri Arnfjörð hjá Garðaþjónustunni Sigur-görðum annast verkið. Nú er m.a. verið að lagfæra aðkomu að hvernum með því að hallabreyta öllu svæðinu og fá yfirborðsvatn til að renna í niðurföll. Hellulagt var…Lesa meira

true

Sigríður Víðis sendir frá sér bókina Vegabréf: Íslenskt

„Vegabréf: Íslenskt“ er ný bók eftir rithöfundinn Sigríði Víðis Jónsdóttur, en bókin kom út hjá Forlaginu í gær, þriðjudaginn 13. september. Fyrri bók hennar; „Ríkisfang: Ekkert“ kom út sama dag fyrir ellefu árum. Í káputexta með nýju bókinni er henni líst svo: „Allt frá því Sigríður Víðis Jónsdóttir komst yfir rauðu landabréfabókina á skólabókasafninu á…Lesa meira