Hér sést Borgarbraut 63 (Sumarliðahús) vinstra megin og Borgarbraut 61 þar aftan við.

Þrjú ný fjölbýlishús skipulögð í Borgarnesi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Gert er ráð fyrir þremur nýjum fjölbýlishúsum ásamt íbúðarhúsum á nýrri <a href=\"https://www.borgarbyggd.is/is/fleiri-tilkynningar/dilatangi-borgarnesi-auglysing-um-nidurstodu-sveitarstjornar-borgarbyggdar-vegna-skipulags\">deiliskipulagstillögu</a> sem auglýst var fyrir Dílatanga og nærsvæði í Borgarnesi í vor. Sveitarstjórn samþykkti tillöguna samhljóða á fundi sínum í síðustu viku, með þeim breytingum sem gerðar voru með tilliti til umsagna og athugasemda sem bárust á kynningartíma.\r\n\r\n<strong>Lóð og tvö ný hús heimiluð í Þórðargötu</strong>\r\nVið Kveldúlfsgötu er gert ráð fyrir nýju fjölbýlishúsi þar sem nú er opið svæði og leiksvæði við enda götunnar uppi við Þórðargötu. Fallið var hins vegar frá því sem ákveðið hafi verið árið 2007, að byggja fjölbýlishús við hlið hússins Stórhöfða (Kveldúlfsgötu 27) innarlega í götunni þar sem opið útsýni er yfir að Borg á Mýrum. Þar mun hluti göngustígs liggja. Við Þórðargötu eru tvær nýjar lóðir teiknaðar undir íbúðarhús, við enda götunnar nær Borgarbraut, og gert er ráð fyrir hljóðverndarvegg milli byggðar og þjóðvegar.\r\n\r\n<strong>Flóðasvæði undir 5 metrum</strong>\r\nÍ skipulagslýsingunni kemur fram að í aðalskipulagi séu skilgreindar takmarkanir á landnotkun. Þær nái hins vegar ekki til skipulagssvæðisins að öðru leyti en því að inn á það nær hugsanlegt flóðasvæði, sem miðast við 5 metra hæðarlínu yfir sjávarmáli. Þarna séu engin hús sem falla undir hverfisvernd og ekki sé vitað um neinar minjar. Borgarvogur ásamt fjörum er hins vegar á náttúruminjaskrá vegna fuglalífs og fellur undir lög um náttúruvernd og því krefjast allar framkvæmdir leyfis og samráðs við Umhverfisstofnun.\r\n\r\n<strong>Sumarliðahús fer</strong>\r\nGert er ráð fyrir að húsið á Kveldúlfsgötu 2B (áður kartöflugeymsla/félagsaðstaða) verði fjarlægt, lóðin stækkuð og heimilt að byggja þar fjölbýlishús. Lóðin Borgarbraut 63 verður stækkuð og gert þar ráð fyrir fjölbýlishúsi, en áður hefur komið fram að þar fyrirhuga Menntaskóli Borgarfjarðar og Brákarhlíð sameiginlega byggingu. Núverandi hús verður fjarlægt. Það hefur verið kallað Sumarliðahús eftir Sumarliða Sigmundssyni sem þar bjó ásamt fjölskyldu sinni á árum áður. Til gamans má geta þess að við íbúatal í Borgarnesi árið 1940 bjuggu rúmlega þrjátíu manns í húsinu sem er tæplega 113 fermetrar að stærð.\r\n\r\nEkki liggur fyrir hvernig brugðist var við innsendum athugasemdum við tillöguna, en þær komu frá eigendum hússins Borgarbraut 61, m.a. vegna aðgengis að húsinu og lóðarmarka.\r\n\r\nDeiliskipulagstillagan var unnin af Einari Ingimarssyni arkitekt og nær yfir göturnar Dílahæð, Þórðargötu, Kveldúlfsgötu, Ánahlíð og hluta Borgarbrautar.\r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"medium\" ids=\"56263,56264\"]",
  "innerBlocks": []
}
Þrjú ný fjölbýlishús skipulögð í Borgarnesi - Skessuhorn