Unnið við heimtaug og tengivirki. Ljósm. RARIK.

Dýrara verður að fá nýja eign tengda við raforkukerfið

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Umhverfis- orku-, og loftslagsráðuneytið hefur sett til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda <a href=\"https://samradsgatt.island.is/oll-mal/$Cases/Details/?id=3278\" target=\"_blank\" rel=\"noopener\">drög að frumvarpi um breytingu á raforkulögum nr. 65/2003</a>. Frumvarpinu er ætlað að skýra lagaheimild dreifiveitna til að innheimta viðbótarkostnað sem tenging nýs viðskiptavinar hefur í för með sér svo hann falli ekki á aðra notendur dreifikerfis. Þannig er stefnu raforkulaga um gegnsæi í gjaldskrármálum og jafnræði notenda raforkukerfisins framfylgt, eins og segir í tilkynningu frá ráðuneytinu. Sambærileg heimild er til staðar í lögunum fyrir tengingar flutningskerfis og er því með frumvarpinu, verði það að lögum, gætt samræmis í raforkukerfinu öllu varðandi heimild til innheimtu viðbótarkostnaðar.\r\n\r\nNú er það svo að ef ný eign er tengd dreifikerfi raforku er fast gjald innheimt fyrir tengingu, óháð raunkostnaði við tenginguna og tækjabúnað sem til þarf. Sé t.d. pöntuð heimtaug fyrir sumarhús í skipulögðu svæði greiðir notandinn nú um 400 þúsund krónur, en upphæðin er helmingi hærri ef húsið er statt fjarri öðrum mannvirkjum. Í frumvarpsdrögunum er bætt setningu, þar sem segir:  \"Standi væntanlegar tekjur dreifiveitu af nýjum viðskiptavini ekki undir eðlilegum stofn- eða rekstrarkostnaði er heimilt að krefja hann um greiðslu viðbótarkostnaðar. Sama á við hafi forsendur viðskipta breyst verulega.\" Samvæmt þessu má reikna með að stofngjald fyrir tengingu rafmagns í nýjar eignir margfaldist í verði, notandinn greiði raunkostnað við tenginguna og aðrir notendur dreifikerfisins hætti að niðurgreiða kostnaðinn.\r\n\r\nFrestur til að skila inn umsögnum um frumvarpsdrögin er til og með 27. september 2022.\r\n\r\n<a href=\"https://samradsgatt.island.is/oll-mal/$Cases/Details/?id=3278\" target=\"_blank\" rel=\"noopener\">Drög að frumvarpi um breytingu á raforkulögum nr. 65/2003 (viðbótarkostnaður)</a>",
  "innerBlocks": []
}
Dýrara verður að fá nýja eign tengda við raforkukerfið - Skessuhorn