{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Laugardaginn 17. september verður haldið málþing um skáldið Þorstein frá Hamri í Hátíðasal Háskóla Íslands. Þar munu ellefu fyrirlesarar, jafnt rithöfundar sem fræðimenn, fjalla um framlag Þorsteins til íslenskrar tungu, bókmennta og þjóðlegra fræða. Flest erindin snúa að ljóðlist Þorsteins, enda er hann eitt merkasta ljóðskáld þjóðarinnar fyrr og síðar, en skáldsögur hans og framlag til þjóðlegs fróðleiks verða einnig til umræðu.\r\n\r\nÞorsteinn (Jónsson) frá Hamri var fæddur 1938 að Hamri í Þverárhlíð í Borgarfirði og lést árið 2018. Hann var eitt fremsta skáld þjóðarinnar, en fyrsta bók hans, Í svörtum kufli, kom út fyrir tæpum sextíu árum. Þorsteinn fékkst auk ritstarfa við þýðingar, prófarkalestur og gerð útvarpsþátta. Hann hlaut fjölda viðurkenninga fyrir skáldskap sinn en auk þess fálkaorðuna árið 1996. Þá var hann m.a. tilnefndur til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.\r\n\r\nGuðrún Nordal forstöðumaður Árnastofnunar opnar þingið sem verður eins og fyrr segir næstkomandi laugardag í Hátíðarsalnum í aðalbyggingu Háskólans og hefst kl. 10.10 með erindi Ástráðs Eysteinssonar prófessors. Lokaerindið flytur Anton Helgi Jónsson kl. 16.40 og þinginu lýkur kl. 17.15 með Þorsteinsfögnuði.\r\n\r\nMálþingsumsjón annast Guðrún Nordal og Ástráður Eysteinsson og að þinginu standa Bókmennta- og listfræðastofnun Háskóla Íslands, Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og félagið Arfur Þorsteins frá Hamri sem stofnað var um minningu skáldsins og verka hans árið 2019.\r\n\r\n<em>Nánar má sjá um dagskrá þingsins á viðburðavef Háskóla Íslands:</em>\r\n\r\n<a href=\"https://www.hi.is/vidburdir/malthing_um_skaldid_thorstein_fra_hamri\">https://www.hi.is/vidburdir/malthing_um_skaldid_thorstein_fra_hamri</a>",
"innerBlocks": []
}