Frá framkvæmdum sem hófust í þarsíðustu viku. Ljósm. af

Framkvæmdir að hefjast við nýjan matskála í Vatnaskógi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Um miðjan ágúst tók Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra skóflustungu að nýjum matskála í sumarbúðunum í Vatnaskógi í Svínadal. Þar voru viðstaddir rúmlega hundrað drengir sem dvöldu í 13. flokki sumarsins, Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands, þingmenn og 150 aðrir gestir. Framkvæmdir hófust í fyrstu viku septembermánaðar og sjá fagmenn um verkið ásamt sjálfboðaliðum. Nýi matskálinn verður reistur beint á móti þeim gamla og er undirbúningsvinnu lokið þar sem jarðvegur og tré voru hreinsuð burt af svæðinu.\r\n\r\n<strong>Vatnaskógur hundrað ára á næsta ári</strong>\r\nAð sögn Ársæls Aðalbergssonar, framkvæmdastjóra Vatnaskógar, er stefnan að koma húsinu upp sem fyrst, allavega að steypa sökkul og gólfplötu með haustinu. Nýi matskálinn verður 433 fermetrar og í honum verður matsalur, eldhús og salernisaðstaða. En er komin einhver dagsetning hvenær verkinu á að ljúka? „Maður þorir ekki að segja til um það en við stefnum að því að næsta ár verði mikill framkvæmdatími við húsið en við munum fagna hundrað ára afmæli sumarbúðanna á næsta ári.“\r\n\r\nAðspurður um fjármögnun segir Ársæll að peningar til verksins komi úr nokkrum áttum: „Fjárlaganefnd ríkisins hefur styrkt verkefnið nú þegar um 60 milljónir króna. Óljóst er með framhaldið en þó er góður vilji þar þótt ekki sé búið að samþykkja neitt ennþá. Þá er stuðningur frá samstarfsaðilum eins og kirkjunni og fleirum. Auk þess á Vatnaskógur fjölmarga velunnara sem hafa styrkt verkefnið nú þegar með gjöfum sem munar mikið um. Á hverju ári er Vatnaskógur með fjáraflanir sem hafa verið nýttar til uppbyggingar á staðnum og skipta miklu máli. Síðasta stóra verkefni Vatnaskógar var bygging seinni hluta Birkiskála sem er 540 fermetra gistiskáli fyrir dvalargesti. Framkvæmdir við hann tóku alls ellefu ár frá árinu 2007 til 2018. Okkar markmið er að byggja nýjan matskála á mun skemmri tíma og erum vongóð um að það takist.“\r\n\r\n<strong>Eigum marga velunnara</strong>\r\nÍ byrjun mánaðarins var hópur liðlega fimmtíu karla á öllum aldri sem borguðu fyrir dvöl í Vatnaskógi og áttu góða daga. Auk fræðslu- og samverustunda var boðið upp á ýmis verkefni til að bæta staðinn. Gátu dvalargestir því valið sér verk eftir áhuga og getu. Sumir máluðu glugga eða hurðir, aðrir gerðu skógarstíga, hreinsuðu staðinn og margt fleira. Aðalverkefni dagsins var svæðið sem nýr matskáli mun rísa á, þar þurfti að fjarlægja tré og koma þeim í burtu til að gera klárt fyrir jarðvinnu hins nýja húss. „Þetta er árleg helgi, svokallaður karlaflokkur, þar sem menn koma saman sem þykir vænt um Vatnaskóg og starfið sem þar fer fram. Við finnum mjög víða fyrir miklum velvilja fyrir starfinu og virkilega þakkarvert hvað margir hugsa hlýtt til okkar. Því erum við bjartsýn að þetta gangi allt vel og hlökkum til að vígja nýja matsalinn sem allra fyrst því þörfin er brýn,“ segir Ársæll að endingu.",
  "innerBlocks": []
}
Framkvæmdir að hefjast við nýjan matskála í Vatnaskógi - Skessuhorn