Sigríður Víðis Jónsdóttir er hér að taka á móti fyrsta eintakinu af bókinni í húsakynnum Forlagsins.

Sigríður Víðis sendir frá sér bókina Vegabréf: Íslenskt

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "„Vegabréf: Íslenskt“ er ný bók eftir rithöfundinn Sigríði Víðis Jónsdóttur, en bókin kom út hjá Forlaginu í gær, þriðjudaginn 13. september. Fyrri bók hennar; „Ríkisfang: Ekkert“ kom út sama dag fyrir ellefu árum. Í káputexta með nýju bókinni er henni líst svo: „Allt frá því Sigríður Víðis Jónsdóttir komst yfir rauðu landabréfabókina á skólabókasafninu á Akranesi hefur veröldin heillað hana. Í Vegabréf: Íslenskt ferðast hún með lesendum vítt og breitt um heiminn, heimsækir brunadeild á sjúkrahúsi í Afganistan, dvelur í völundarhúsi í Sýrlandi, hittir börn í gullnámu í Búrkína Fasó og kynnist flóttafólki í Suður-Súdan sem hefur gengið svo vikum skiptir til að komast aftur heim að stríði loknu. Í Eþíópíu búa geimverur á Hilton-hótelinu og í Mjanmar hvíslar fólk um stjórnvöld. Í gegnum frásagnir af fólki á hverjum stað miðlar Sigríður heimssögunni af einstakri næmni og virðingu og minnir okkur á að þrátt fyrir að höf og eyðimerkur skilji okkur að búum við öll undir sama himni, sömu sól.“\r\n\r\nSigríður Víðis Jónsdóttir hefur starfað sem blaðamaður, kynningarstjóri UNICEF á Íslandi og aðstoðarmaður ráðherra. Fyrsta bók hennar, Ríkisfang: Ekkert, vakti mikla athygli og hlaut meðal annars viðurkenningu Hagþenkis auk þess sem hún var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Fjöruverðlaunanna.\r\n\r\n<strong>Það stóra sem litar það smáa\r\n</strong>„Í nýju bókinni segi ég valdar sögur af manneskjum og atburðum sem mér finnst að gætu varpað ljósi á eitthvað stærra. Ég er þannig að reyna að setja andlit á atburði sem fólk þekkir til dæmis úr fréttum og færa þá nær þeim, rétt eins og markmiðið var með Ríkisfang: Ekkert. Undirlagið að lífi fólks hefur alltaf heillað mig, það stóra sem litar það smáa – pólitíkin sem hefur bein áhrif á það persónulega.“\r\n\r\nSigríður segir að hún vissi alltaf sem lítil stelpa á Akranesi að sig langaði að sjá veröldina. „Foreldrar mínir, Kristín Steinsdóttir rithöfundur og Jón Hálfdanarson eðlisfræðingur tóku því sem betur fer vel. Um leið og ég var orðin unglingur fór ég af stað. Ég flakkaði um í þónokkuð mörg ár og var oft lengi í burtu í einu. Vann fyrir mér sem blaðamaður á meðan og skrifaði fréttaskýringar, viðtöl, pistla og annað. Ég hef alltaf haft áhuga á hjálparstarfi og skrifaði til að mynda BA-ritgerðina mína því tengt og fór síðan í meistaranám sem hverfðist um hjálparstarf og átakasvæði. Mér fannst þess vegna margfalt áhugaverðara á þessum tíma að dvelja á fátækum eða stríðshrjáðum stöðum en til dæmis á sólarströnd með sundlaugargarði.“\r\n\r\n<em>Lengra viðtal við Sigríði og örbrot úr bókinni Vegabréf: Íslenskt er í nýjasta tölublaði Skessuhorns sem kom út í dag.</em>",
  "innerBlocks": []
}
Sigríður Víðis sendir frá sér bókina Vegabréf: Íslenskt - Skessuhorn