Munni Hvalfjarðarganga.

Leggjast gegn gjaldtöku í þegar byggð og fjármögnuð göng

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Andrea Ýr Arnarsdóttir, oddviti Hvalfjarðarsveitar, sendi innviðaráðuneytinu 5. ágúst sl. umsögn fyrir hönd sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar vegna fyrirætlunar ráðherra um gjaldtöku fyrir umferð í jarðgöngum. Sveitarstjórn hefur nú staðfest umsögnina, en í bókun sveitarstjórnar segir:\r\n\r\n„Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar tekur undir að þjóðfélagslegur ávinningur fylgi því að hafa góðar samgöngur og það sé hagur allra landsmanna að flýta uppbyggingu samgönguinnviða. Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar hefur hinsvegar þungar áhyggjur hvað varðar áform um ný jarðgangagjöld. Á það sérstaklega við um Hvalfjarðargöng þar sem þau eru mikilvæg samgönguæð fyrir íbúa og gesti Hvalfjarðarsveitar auk þess að gegna mikilvægu hlutverki fyrir atvinnu- og þjónustufyrirtæki á svæðinu. Framkvæmd Hvalfjarðargangna hefur nú þegar verið greidd að fullu með 20 ára gjaldtöku frá vegfarendum og að hefja gjaldtöku þar að nýju væri að mati sveitarstjórnar mikil mismunun að ótöldum kostnaðarauka fyrir íbúa, gesti og atvinnulíf Hvalfjarðarsveitar. Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar leggst eindregið gegn áformum um gjaldtöku í þegar byggðum og fjármögnuðum jarðgöngum líkt og Hvalfjarðargöngum.“\r\n\r\nBæjarstjórn Akraneskaupstaðar samþykkti svipaða ályktun á fundi sínum síðastliðinn þriðjudag, eins og sagt var frá í frétt Skessuhorns í gær.",
  "innerBlocks": []
}
Leggjast gegn gjaldtöku í þegar byggð og fjármögnuð göng - Skessuhorn