{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Mikill meirihluti landsmanna, eða 72%, er hlynntur því að tekin verði upp leigubremsa á Íslandi. Leigubremsa er það kallað þegar gefið er út viðmið hversu mikið húsaleiga má hækka yfir tiltekið tímabil. Þetta kom fram í könnun sem Maskína gerði fyrir Samtök leigjenda á Íslandi. Aðeins 11% sögust vera fremur eða mjög andvíg því að tekin yrði upp leigubremsa, 72 prósent frekar eða mjög hlynnt.\r\n\r\nSama niðurstaða kom fram um leiguþak, en leiguþak er það kallað þegar gefið er út hámarksleiguverð á leiguhúsnæði miðað við stærð, gæði og staðsetningu. 71% mjög eða frekar hlynnt því að sett yrði á leiguþak en aðeins 13% frekar eða mjög andvíg slíku.\r\n\r\n„Það er ljóst að meginþorri almennings vill verja leigjendur fyrir því óstjórnlega okri sem hér hefur geisað á leigumarkaði,“ segir Guðmundur Hrafn Arngrímsson, formaður Samtaka leigjenda. „Og að aðeins lítill minnihluti vill það ekki. Vandi okkar er að það er þessi minnihluti sem ræður stefnu stjórnvalda. Það er vandi leigjenda og vandi okkar samfélags.“\r\n\r\nMeirihluti er fyrir bæði leigubremsu og leiguþaki í öllum tekjuhópum, aldurshópum, kynjum og landshlutum. Það er sama hvaða menntun fólk hefur, hvaða flokka það kýs eða hver staða þess er á leigumarkaði. Alls staðar segist meirihlutinn vilja bæði leigubremsu og leiguþak.",
"innerBlocks": []
}
Mikill meirihluti vill leigubremsu og leiguþak - Skessuhorn