Hér er verið að helluleggja göngustíg frá Kraumu og niður á bílaplan.

Meira um framkvæmdir við Deildartunguhver

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í byrjun mánaðarins birtum við frétt þess efnis í Skessuhorni að framkvæmdir hafa staðið yfir við umhverfi og aðkomu að Deildartunguhver í Borgarfirði. Sindri Arnfjörð hjá Garðaþjónustunni Sigur-görðum annast verkið. Nú er m.a. verið að lagfæra aðkomu að hvernum með því að hallabreyta öllu svæðinu og fá yfirborðsvatn til að renna í niðurföll.\r\n\r\nHellulagt var í kringum niðurföllin og mulningur settur í ytri svæði. Göngusvæði voru mótuð og mulinn sandur settur í yfirborð. Þá var bætt við tröppum og vegghleðslur settar sitt hvorum megin til að halda á móti jarðvegi. Sindri segir að nú sé eftir að setja lokanir meðfram bílastæðum og við göngustíga. Þá er unnið við að lengja göngustíg frá Kraumu niður á bílaplan en stígurinn er lagður með plastgrindarkerfi sem inniheldur hellur. Þá verður hægt að tengja saman göngustíg og aðkomu að hvernum. „Þannig að verkinu fer að ljúka bráðlega,“ segir Sindri Arnfjörð.",
  "innerBlocks": []
}
Meira um framkvæmdir við Deildartunguhver - Skessuhorn