Fréttir

true

Skagakonur unnu sigur á ÍR og eiga enn möguleika

ÍA tók á móti ÍR í úrslitakeppni sex efstu liða í 2. deild kvenna í knattspyrnu á laugardaginn og var leikurinn á Akranesvelli. Skagakonur mættu vel stemmdar til leiks og voru ívið hættulegri í fyrri hálfleiknum og fengu nokkur góð færi sem þær náðu ekki að nýta. Fyrsta mark leiksins kom sex mínútum fyrir lok…Lesa meira

true

Kosning hafin um fugl ársins

Eftirtaldir fuglar keppa nú um að verma hæstu fuglaþúfuna 2022: Auðnutittlingur, himbrimi, hrafn, hrossagaukur, jaðrakan, kría og maríuerla. Hægt er að kynna sér fróðleiksmola um tegundirnar á www.fuglarsins.is og kjósa þann fugl sem verðskuldar hæstan sess þetta árið. Tilkynnt verður um Fugl ársins 2022 á Degi ísenskrar náttúru, 16. september. Með kosningu á Fugli ársins…Lesa meira

true

Jafntefli hjá ÍA og KR í miklum markaleik

Skagamenn tóku á móti KR í 20. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu í gær og fór leikurinn fram í blíðskaparveðri á Akranesvelli. Það blés þó ekki byrlega fyrir ÍA í byrjun leiksins því eftir tæpan hálftíma leik voru gestirnir komnir með þriggja marka forystu. Fyrst skoraði fyrrum leikmaður ÍA Aron Kristófer Lárusson með hörkuskoti…Lesa meira

true

Ungt fólk og lýðræði á Laugarvatni

Ungmennaráðstefnan Ungt fólk og lýðræði fer fram dagana 9. – 11. september á Laugarvatni. Yfirskrift hennar er: „Láttu drauminn rætast!“ Á ráðstefnunni verður lögð áhersla á að efla lýðræðislega þátttöku ungs fólks í leik og starfi, allt gert til að einstaklingar geti styrkt sjálfsmynd sína og tekið upplýstar ákvarðanir um eigið líf og lífsstíl. Ráðstefnan…Lesa meira

true

Sigsteinn Grétarsson ráðinn forstjóri Skaginn 3X og Baader Ísland

Samið hefur verið við Sigstein Grétarsson um að taka við sem forstjóri Skagans 3X og Baader á Íslandi. „BAADER styrkir áfram teymið á Íslandi með ráðningu á Sigsteini Grétarssyni í stöðu forstjóra. Sigsteinn er margreyndur stjórnandi og leiðtogi með margþætta reynslu af alþjóðaviðskiptum og matvælatækni,“ segir í tilkynningu frá fyrirtækinu. Þar segir jafnframt: „Ráðningin er…Lesa meira

true

Kristrún byrjar fundaferð sína á Akranesi í dag

Kristrún Frostadóttir alþingismaður (S) hefur boðað til fjölda opinna funda um land allt á næstu vikum. Hringferðin hefst á Akranesi í dag, mánudaginn 5. september, með opnum fundi í Golfskálanum sem hefst kl. 17:00. Það vakti athygli síðasta vetur þegar Kristrún lagði land undir fót og hélt 37 opna fundi með fólki í heimabyggð þess…Lesa meira

true

Verklag Matvælastofnunar í dýravelferðarmálum

„Umfangsmikil dýravelferðamál rata gjarnan í fjölmiðla, umræðan er síðan oftar en ekki tekin upp og haldið áfram á hinum ýmsu samfélagsmiðlum. Matvælastofnun er ekki heimilt að tjá sig um einstök mál, en stofnunin vinnur eftir útgefnu verklagi,“ segir í tilkynningu frá Matvælastofnun sem send var í morgun. Tilkynningin er þannig í heild: „Brugðist er við…Lesa meira

true

Matsferill kemur í stað samræmdra könnunarprófa

Samræmd könnunarpróf verða ekki lögð fyrir í grunnskólum á þessu skólaári og ekki fram til ársins 2024 að minnsta kosti. Með lagabreytingu í sumar hefur skyldu um lagningu prófanna verið frestað á meðan unnið er áfram að þróun nýs samræmds námsmats sem nefnist Matsferill. Það kerfi mun leysa samræmdu prófin af hólmi. „Matsferill er nýtt…Lesa meira

true

Nesmelsrétt í Hvítársíðu var fyrsta rétt haustsins

Það viðraði vel fyrir bændur og búsmala þegar Síðufjallið var smalað á laugardaginn og féð rekið til réttar á Nesmel í Hvítársíðu. Þægileg gola og sextán stiga hiti gerði daginn fallegan í alla staði. Síðufjallið er einkum smalað til að létta á þeim fjárfjölda sem annars væri rekinn til Þverárréttar um næstu helgi. Féð í…Lesa meira

true

Íbúum fjölgar á Vesturlandi

Íbúum á Vesturlandi hefur frá 1. desember síðastliðnum fjölgað um 307 sem jafngildir 0,6%. Íbúum fjölgar í öllum landshlutum nema á Norðurlandi vestra. Hlutfallslega mest hefur fjölgunin verið á Suðurnesjum eða um 4,9% sem er fjölgun um 1.426 íbúa. Íbúum á Suðurlandi fjölgaði um 2,7% á tímabilinu eða um 870 íbúa. Íbúum á Norðurlandi vestra…Lesa meira