Fréttir

true

Listamenn í útivinnu

Það viðraði vel í morgun fyrir listamennina á Akranesi sem nú skreyta veggi. Nafnarnir Bjarni Skúli Ketilsson og Bjarni Þór Bjarnason voru báðir á fullu við verk sín þegar blaðamaður Skessuhorns átti leið um, eru langt komnir með þau. Sífellt voru bæjarbúar að gefa sig á tal við þá félaga og ekki alltaf sem verkin…Lesa meira

true

Kaffihúsið Valeria býður upp á kólumbískt kaffi

Þetta viðtal birtist fyrst í 34. tölublaði Skessuhorns sem kom út 24. ágúst á þessu ári. Viðtalið birtist nú á vefnum í heild sinni. Í júní opnaði í Grundarfirði nýtt kaffihús sem heitir Valeria. Eigendur þess eru hjónin Marta Magnúsdóttir og Jan Van Haas. Marta er uppalinn Grundfirðingur og vill hvergi annars staðar vera og…Lesa meira

true

„Dýraníð á aldrei að fá að viðgangast“

Umræða um slæman aðbúnað hrossa í hesthúsi í Borgarnesi hefur verið í hámæli síðan á miðvikudaginn í þessari viku, þegar Steinunn Árnadóttir hestakona í Borgarnesi vakti máls á því á FB síðu sinni. Birti hún myndir af skinhoruðu tryppi í gerði við hesthús með orðunum: „Þessi vesalings skepna á sér engan málsvara. Eftirlit bregst og…Lesa meira

true

Málleysingjar eiga að geta treyst því að farið sé eftir ábendingum

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í gær var lokaliður á dagskrá dýravelferðarmál í sveitarfélaginu. Þar segir orðrétt: „Eftirlit með dýravelferð er á hendi Matvælastofnunar (MAST). Byggðarráð Borgarbyggðar leggur til að umhverfis- og landbúnaðarnefnd eigi samtal við MAST um framkvæmd eftirlitsheimsókna og eftirfylgni með ábendingum. Í Borgarbyggð er mikill fjöldi íbúa sem heldur húsdýr og landbúnaður er…Lesa meira

true

Hallbera og Íslandsmeistarar FH 1972 heiðraðar í dag

Fyrir leik Íslands gegn Belarús í undankeppni HM 2023 sem fram fer í dag á Laugardalsvelli klukkan 17.30 verður Hallbera Guðný Gísladóttir heiðruð fyrir framlag sitt til knattspyrnu. Hallbera Guðný Gísladóttir lagði skóna á hilluna eftir síðasta leik Íslands á EM á Englandi í sumar. Hún spilaði samtals 131 leik fyrir Íslands hönd og skoraði…Lesa meira

true

Nýsköpunarnámskeið fyrir frumkvöðla í textíl

Háskóli Íslands, í samstarfi við Textílmiðstöð Íslands, býður í haust upp á nýsköpunarnámskeið sem tengist textílvinnslu hér á landi. Námskeiðið nefnist „Heldurðu þræði“ og er hugsað fyrir þá sem vilja hrinda viðskiptahugmynd í framkvæmd og hefja eigin rekstur með áherslu á textíl eða eru í atvinnurekstri og vilja auka rekstrarþekkingu sína. Námskeiðið er haldið í…Lesa meira

true

Bálhvasst í Staðarsveit

Vindhraði mældist ríflega 36 metrar á sekúndu í hviðum um kl. 10.30 í morgun við Hraunsmúla í Staðarsveit. Þar var Þröstur Albertsson tengiliður Skessuhorns á ferð í morgun og sá að Suzuki Jimny bíll tveggja ferðamanna hafði verið ekið út af veginum vegna hvassviðrisins. Tjald sem hafði verið á þaki bílsins lá öðru megin vegar…Lesa meira

true

Hafrafellslón á yfirfalli

Staðan er enn óviss við Hafrafellslón við Langjökul þótt sljákkað hafi um stund í Hvítá síðan hlýindin og leysingarnar voru sem mestar fyrir nokkrum dögum. Bergþór Kristleifsson á Húsafelli flaug yfir svæðið í gær og gaf blaðinu góðfúslegt leyfi til birtingar mynda sem hann tók við það tækifæri. Hann segir lónið á yfirfalli til norðurs…Lesa meira

true

Fjórfalt meiri eftirspurn en framboð af mjólkurkvóta

Markaður með greiðslumark í mjólk var haldinn í gær, 1. september. Matvælaráðuneytinu bárust 99 gild tilboð um kaup og sölutilboð voru 23. Í gildi er ákvörðun ráðherra um að hámarksverð skuli vera þrefalt afurðastöðvaverð sem við lok tilboðsfrests var 336 kr. fyrir hvern lítra. Við opnun tilboða kom fram jafnvægisverð sem er jafnt hámarksverði. Greiðslumark…Lesa meira

true

Óvænt forföll valda vanda á heilsugæslustöðinni í Borgarnesi

Heilbrigðisstofnun Vesturlands hefur sent frá sér tilkynningu um erfiða tíma í læknamönnun á Heilsugæslunni í Borgarnesi. Þar segir að vegna skorts á læknum þar hafi þurft að forgangsraða þjónustu undanfarið eða frá því læknir lét af störfum í lok júlí. Svo segir í tilkynningunni: „Nú hafa bæst við óvænt forföll í september sem veldur því…Lesa meira