Fréttir

true

Ríkisendurskoðun hyggst framkvæma úttekt á eftirliti með velferð dýra

Ríkisendurskoðun ákvað í gær að hefja frumkvæðisúttekt á eftirliti Matvælastofnunar með velferð dýra skv. lögum nr. 55/2013. Þetta var ákveðið daginn eftir að tilkynnt var opinberlega um meinta illa meðferð á hrossum í hesthúsi í Borgarnesi. Þegar það mál var gert opinbert á samfélagsmiðlum og fjölmiðlum í kjölfarið gat viðkomandi þess jafnframt að eftirlitskerfið hafi…Lesa meira

true

Árgangamót ÍA í knattspyrnu haldið á ný

Hið rómaða árgangamót ÍA fer nú fram að nýju eftir langt Covid hlé en síðast var mótið haldið árið 2019. Fresta varð mótinu síðustu tvö ár vegna kórónufaraldursins. Komin er dagsetning á mótið og verður það laugardaginn 12. nóvember eftir hádegi. Þar munu etja kappi knattspyrnumenn og -konur sem eru 30 ára og eldri. Fyrsta…Lesa meira

true

Móðir, kona, meyja í Safnahúsi

Á morgun, laugardaginn 3. september, verður opnuð ný sýning í Hallsteinssal í Safnahúsi Borgarfjarðar við Bjarnarbraut í Borgarnesi. Sýningin sem opnuð verður nefnist Móðir, kona, meyja. Þar eru sýnd verk þriggja ættliða, þeirra Svanheiðar Ingimundardóttur, S. Tinnu Gunnarsdóttur og Töru Bjarkar Helgadóttur. Sýningunni er ætlað að kalla fram hvernig list getur erfst á milli kynslóða…Lesa meira

true

Gleði verður þema Barnamenningarhátíðar Vesturlands

Barnamenningarhátíð Vesturlands verður haldin í Snæfellsbæ nú í september. Snæfellsbær heldur hátíðina í samstarfi við Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi og er þema hennar í ár „gleði.“ Hátíðin hefst í annarri viku septembermánaðar og stendur út mánuðinn. Fram kemur á heimasíðu Snæfellsbæjar að fyrirtæki og einstaklingar sem vilja taka þátt og bjóða upp á sýningar, viðburði,…Lesa meira

true

Reglugerð um endurgreiðslu vegna þjónustu sérgreinalækna

Gildistími reglugerðar heilbrigðisráðherra um endurgreiðslu vegna þjónustu sérgreinalækna hefur verið framlengdur frá 1. september til 31. október nk. Reglugerð um framlenginguna hefur verið send Stjórnartíðindum og birtist í dag. „Réttur sjúklinga til endurgreiðslu kostnaðar vegna þjónustu sérgreinalækna helst því óbreyttur. Samningaviðræður milli Sjúkratrygginga Íslands og sérgreinalækna standa yfir. Heilbrigðisráðuneytið leggur áherslu á að staða sjúklinga…Lesa meira

true

Yfirlýsing frá Ollu í Nýja-Bæ

Á Facebooksíðunni Hrossarækt Ollu í Nýja-Bæ, sem fjallar um hrossarækt Ólafar Guðbrandsdóttur, var í dag sett inn eftirfarandi yfirlýsing vegna vannærðu hrossanna í Borgarnesi og fjallað hefur verið um í fjölmiðlum í dag og gær: „Vegna umfjöllun fjölmiðla undanfarinn sólarhring vill Olla í Nýjabæ koma því skýrt á framfæri að hún er virkilega sorgmædd yfir…Lesa meira

true

Vesturlandsmót kvenna í golfi var á Hamri

Síðastliðinn laugardag var Vesturlandsmót kvenna í golfi haldið á Hamri í Borgarnesi. Blíðskaparveður var þennan dag og nutu um 50 konur keppninnar við bestu aðstæður. Félagar í Golfklúbbnum Leyni á Akranesi báru sigur úr býtum í höggleik. Í efstu sætum urðu þær María Björg Sveinsdóttir, Vala María Sturludóttir og Ruth Einarsdóttir. Í punktakeppni fóru leikar…Lesa meira

true

Vetraropnun í Akranesvita og Guðlaugu

Í dag, fimmtudaginn 1. september, tekur vetraropnun gildi í Akranesvita þar sem jafnframt er upplýsingamiðstöð ferðamanna á Akranesi. Einnig breytist opnunartími baðlaugarinnar Guðlaugar við Langasand. Opið verður í vitanum á mánudögum kl. 10-14 og þriðjudaga til föstudaga frá klukkan 10 til 16. Lokað verður um helgar. Guðlaug verður opin fjóra daga í viku; miðvikudaga og…Lesa meira

true

Vannærð hross í hesthúsahverfi – voru fjarlægð úr húsinu í nótt

Í gær setti Steinunn Árnadóttir hestakona í Borgarnesi færslu á Facebook þar sem hún vakti athygli á illri meðferð hrossa í hesthúsi í hverfinu við Vindás í Borgarnesi. Benti hún á að um vanfóðrun væri greinilega að ræða auk þess sem hrossin hefðu ekki verið í haga í sumar og væru að mestu leyti lokuð…Lesa meira

true

Haldið til veiða á nýju kvótaári

Í dag hófst nýtt kvótaár á Íslandsmiðum. Að þessu sinni hefjast veiðarnar í skugga minni þorskkvóta en á síðasta fiskveiðiári, en menn halda engu að síður til veiða. Þorskveiðikvótinn nú er tæp 209 þúsund tonn. Sjómenn í Ólafsvík voru í gær að undirbúa báta sína undir sjósókn. Þeirra á meðal voru Höskuldur Árnason og Lárus…Lesa meira