
Tógið gert klárt. Ljósm. af.
Haldið til veiða á nýju kvótaári
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í dag hófst nýtt kvótaár á Íslandsmiðum. Að þessu sinni hefjast veiðarnar í skugga minni þorskkvóta en á síðasta fiskveiðiári, en menn halda engu að síður til veiða. Þorskveiðikvótinn nú er tæp 209 þúsund tonn. Sjómenn í Ólafsvík voru í gær að undirbúa báta sína undir sjósókn. Þeirra á meðal voru Höskuldur Árnason og Lárus Einarsson sem eru í áhöfn Sveinbjörns Jakobssonar SH í Ólafsvík. Þeir voru að mæla tógin ásamt skipsfélögum sínum, auk þess að taka kör og ís um borð fyrir næsta dag.\r\n\r\nSjómenn vertíðarbáta skilja ekki þennan árlega niðurskurð hjá Hafrannsóknastofnun, ár eftir ár, og segja að það sé meira en nóg af fiski út um allan sjó og síst ástæða til að draga úr kvóta við þær aðstæður. \"Það er eins og stefnan hjá íslenska ríkinu sé að rústa einyrkjanum og neyða hann til þess að færa stórútgerðinni kvótann,“ sagði einn viðmælenda Skessuhorns um niðurskurð Hafró.",
"innerBlocks": []
}