
Hópurinn saman kominn eftir hátíðarkvöldverð.
Vesturlandsmót kvenna í golfi var á Hamri
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Síðastliðinn laugardag var Vesturlandsmót kvenna í golfi haldið á Hamri í Borgarnesi. Blíðskaparveður var þennan dag og nutu um 50 konur keppninnar við bestu aðstæður. Félagar í Golfklúbbnum Leyni á Akranesi báru sigur úr býtum í höggleik. Í efstu sætum urðu þær María Björg Sveinsdóttir, Vala María Sturludóttir og Ruth Einarsdóttir.\r\n\r\nÍ punktakeppni fóru leikar þannig að Kristín Pétursdóttir úr Golfklúbbnum Vestarr varð í fyrsta sæti, önnur varð Guðrún Sigurðardóttir úr Golfklúbbi Borgarness og Erna Guðmundsdóttir úr Golfklúbbnum Mostra varð þriðja.\r\n\r\nÍ keppni golfklúbba, eða sveitakeppninni, giltu samanlagðir punktar fjögurra efstu kylfinga úr hverjum klúbbi. Þar sigruðu heimakonur í Golfklúbbi Borgarness, Leynir á Akranesi varð í öðru sæti og Vestarr í Grundarfirði í þriðja. Auk þessara verðlauna voru nándarverðlaun veitt á öllum par 3 brautum, verðlaun fyrir næst holu eftir annað högg á brautum 11 og 16 og verðlaun fyrir lengsta upphafshögg á 10. og 17 braut.\r\n\r\nStyrktaraðilar mótsins voru Hótel B59, Fok, Arion banki, Samkaup, Kaupfélag Borgfirðinga, Steypustöðin, Brúartorg, Borgarsport, JGR heildverslun og N1.",
"innerBlocks": []
}