Vannærð hross í hesthúsahverfi – voru fjarlægð úr húsinu í nótt

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í gær setti Steinunn Árnadóttir hestakona í Borgarnesi færslu á Facebook þar sem hún vakti athygli á illri meðferð hrossa í hesthúsi í hverfinu við Vindás í Borgarnesi. Benti hún á að um vanfóðrun væri greinilega að ræða auk þess sem hrossin hefðu ekki verið í haga í sumar og væru að mestu leyti lokuð inni í húsi. Þar á meðal væri hryssa með folald. Steinunn birti mynd af mjóslegnu tryppi í gerði við nágrannahesthús sitt. Þar sést greinilega móta fyrir rifbeinum dýrsins og það hengir haus. Málið vakti strax mikil og sterk viðbrögð, bæði almennings og fjölmiðla. Eftir því sem næst verður komist hafa ítrekaðar tilkynningar fólks til eftirlitsaðila um meinta vanrækslu þarna ekki orðið til þess að gripið væri inn í dýrahald viðkomandi aðila, sem einnig halda skepnur víðar í héraðinu. Matvælastofnun er harðlega gagnrýnd.\r\n\r\nÍ dag virðist sem skepnurnar hafi verið fluttar af svæðinu í nótt og er málið væntanlega í höndum lögreglu og Matvælastofnunar. Í Ríkisútvarpinu var í morgun rætt við Hönnu Ólínu Þorsteinsdóttur, forstjóra MAST, sem sagði að árlega bærust fjöldi tilkynninga um illa meðferð á dýrum, sérlega þó á hestum og hundum, enda væru þau dýr hvað sýnilegust í samfélaginu. Hanna Ólína gaf ekkert uppi um stöðuna á þessu tiltekna máli enda myndi hún ekki fjalla um einstök mál í fjölmiðlum. En það er ljóst að þetta mál hefur vakið mikla hneykslan og að stofnunin liggur undir ámæli fyrir að hafa ekki gripið með afgerandi hætti inn í það á fyrri stigum í sumar, þegar athygli var vakin á ástandinu. Borið er við andmælarétti eigenda, sem virðist í þessu tilfelli alltof mikill á kostnað dýravelferðar.",
  "innerBlocks": []
}