Ríkisendurskoðun hyggst framkvæma úttekt á eftirliti með velferð dýra

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Ríkisendurskoðun ákvað í gær að hefja frumkvæðisúttekt á eftirliti Matvælastofnunar með velferð dýra skv. lögum nr. 55/2013. Þetta var ákveðið daginn eftir að tilkynnt var opinberlega um meinta illa meðferð á hrossum í hesthúsi í Borgarnesi. Þegar það mál var gert opinbert á samfélagsmiðlum og fjölmiðlum í kjölfarið gat viðkomandi þess jafnframt að eftirlitskerfið hafi ekki brugðist við ítrekuðum tilkynningum um þá vanrækslu sem þarna var að eiga sér stað, þegar hrossum var haldið í húsum við þröngan kost og slæman aðbúnað heilt sumar.\r\n\r\n„Áætlun um afmörkun og framkvæmd úttektarinnar liggur ekki fyrir en slík áætlun mun verða endurskoðuð eftir því sem úttektinni vindur fram. Í því sambandi er ítrekað að skv. 3. mgr. 1. gr. laga nr. 46/2016 um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga er ríkisendurskoðandi sjálfstæður og engum háður í störfum sínum og ákveður sjálfur hvernig hann sinnir hlutverki sínu samkvæmt lögunum. Niðurstaða úttektarinnar verður birt í opinberri skýrslu til Alþingis,“ segir í tilkynningu frá Ríkisendurskoðun.",
  "innerBlocks": []
}
Ríkisendurskoðun hyggst framkvæma úttekt á eftirliti með velferð dýra - Skessuhorn