Móðir, kona, meyja í Safnahúsi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Á morgun, laugardaginn 3. september, verður opnuð ný sýning í Hallsteinssal í Safnahúsi Borgarfjarðar við Bjarnarbraut í Borgarnesi. Sýningin sem opnuð verður nefnist Móðir, kona, meyja. Þar eru sýnd verk þriggja ættliða, þeirra Svanheiðar Ingimundardóttur, S. Tinnu Gunnarsdóttur og Töru Bjarkar Helgadóttur. Sýningunni er ætlað að kalla fram hvernig list getur erfst á milli kynslóða og sameinað þær. Við opnun sýningarinnar munu þær S. Tinna og Tara Björk bjóða upp á tónleika, en ásamt áhuga á myndlist hafa þær stundað nám í söng og píanóleik. Opnunarhátíðin stendur yfir frá klukkan 14.00-17.00 og eru allir boðnir velkomnir, en aðgangur er ókeypis. Sýningin mun standa til 1. október.",
  "innerBlocks": []
}