Árgangamót ÍA í knattspyrnu haldið á ný

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Hið rómaða árgangamót ÍA fer nú fram að nýju eftir langt Covid hlé en síðast var mótið haldið árið 2019. Fresta varð mótinu síðustu tvö ár vegna kórónufaraldursins. Komin er dagsetning á mótið og verður það laugardaginn 12. nóvember eftir hádegi. Þar munu etja kappi knattspyrnumenn og -konur sem eru 30 ára og eldri. Fyrsta árgangamót ÍA var haldið árið 2011 og það er ljóst að gamlir knattspyrnumenn og konur af Skaganum þurfa að fara að setja sig í startholurnar, pússa skóna og koma sér í form.",
  "innerBlocks": []
}
Árgangamót ÍA í knattspyrnu haldið á ný - Skessuhorn