Systurnar með ungum aðdáanda í Snæfellsbæ í sumar. Ljósm. af.

Gleði verður þema Barnamenningarhátíðar Vesturlands

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Barnamenningarhátíð Vesturlands verður haldin í Snæfellsbæ nú í september. Snæfellsbær heldur hátíðina í samstarfi við Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi og er þema hennar í ár „gleði.“ Hátíðin hefst í annarri viku septembermánaðar og stendur út mánuðinn.\r\n\r\nFram kemur á heimasíðu Snæfellsbæjar að fyrirtæki og einstaklingar sem vilja taka þátt og bjóða upp á sýningar, viðburði, tilboð á vörum og annað í tilefni hátíðarinnar eru hvattir til að hafa samband við skipuleggjendur í gegnum netfangið heimir@snb.is. Hægt er að senda inn upplýsingar um viðburði til 5. september næstkomandi.",
  "innerBlocks": []
}
Gleði verður þema Barnamenningarhátíðar Vesturlands - Skessuhorn