Nýsköpunarnámskeið fyrir frumkvöðla í textíl

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Háskóli Íslands, í samstarfi við Textílmiðstöð Íslands, býður í haust upp á nýsköpunarnámskeið sem tengist textílvinnslu hér á landi. Námskeiðið nefnist „Heldurðu þræði“ og er hugsað fyrir þá sem vilja hrinda viðskiptahugmynd í framkvæmd og hefja eigin rekstur með áherslu á textíl eða eru í atvinnurekstri og vilja auka rekstrarþekkingu sína. Námskeiðið er haldið í tengslum við evrópska rannsókna- og þróunarverkefnið Centrinno sem starfsfólk Háskólans og Textílmiðstöðvar Íslands taka þátt í. Námskeiðið er endurgjaldslaust.\r\n\r\nÞátttakendur fá margháttaðan stuðning og fræðslu á námskeiðinu, m.a. við að búa til heildstæða viðskiptaáætlun í kringum hugmyndir sínar. Þar verður einnig farið yfir stefnumótun, stjórnun og starfsmannamál, markaðssetningu og hagnýtingu samfélagsmiðla til að koma vörum sínum á framfæri en jafnframt er boðið upp á fræðslu um hringrásarhagkerfið, jafnréttisáherslur og umhverfismál.\r\n\r\nNámskeiðið hefst 20. september og stendur í níu vikur. Kennt verður í fjarnámi og einni staðlotu. Kynningarfundur fyrir námskeiðið verður mánudaginn 12. september kl. 12-12.30 og verður honum streymt á netinu. Skráning er hafin á FB síðu verkefnisins sem heitir: Heldurðu þræði.",
  "innerBlocks": []
}
Nýsköpunarnámskeið fyrir frumkvöðla í textíl - Skessuhorn