Ráðhús Borgarbyggðar. Ljósm. gj.

Málleysingjar eiga að geta treyst því að farið sé eftir ábendingum

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í gær var lokaliður á dagskrá dýravelferðarmál í sveitarfélaginu. Þar segir orðrétt:\r\n\r\n„Eftirlit með dýravelferð er á hendi Matvælastofnunar (MAST). Byggðarráð Borgarbyggðar leggur til að umhverfis- og landbúnaðarnefnd eigi samtal við MAST um framkvæmd eftirlitsheimsókna og eftirfylgni með ábendingum. Í Borgarbyggð er mikill fjöldi íbúa sem heldur húsdýr og landbúnaður er einn af hornsteinum atvinnulífs. Undantekningarlítið er sú starfsemi til fyrirmyndar og vel gætt að velferð dýra. Íbúar Borgarbyggðar geta ekki unað því ef pottur er brotinn í eftirliti MAST og ákvarðanataka og framkvæmd samkvæmt eigin reglum er hæg og óskilvirk. Málleysingjar eiga að geta treyst á að farið sé eftir ábendingum og reglum fylgt við eftirlit og rannsókn mála. Mál er varða velferð þeirra þurfa að vera unnin hratt og vel. Það er mikilvægt að íbúar hafi vakandi auga með velferð dýra og þakkarvert að slíkum ábendingum sé komið í farveg til MAST,“ segir í bókun byggðarráðs Borgarbyggðar.",
  "innerBlocks": []
}
Málleysingjar eiga að geta treyst því að farið sé eftir ábendingum - Skessuhorn