Jan Van Haas og Marta Magnúsdóttir, eigendur Valeriu

Kaffihúsið Valeria býður upp á kólumbískt kaffi

"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Þetta viðtal birtist fyrst í 34. tölublaði Skessuhorns sem kom út 24. ágúst á þessu ári. Viðtalið birtist nú á vefnum í heild sinni.\r\n\r\nÍ júní opnaði í Grundarfirði nýtt kaffihús sem heitir Valeria. Eigendur þess eru hjónin Marta Magnúsdóttir og Jan Van Haas. Marta er uppalinn Grundfirðingur og vill hvergi annars staðar vera og því lá beinast við að Jan flytti með henni til Grundarfjarðar þegar þau tóku saman. Jan er frá Kólumbíu, foreldrar hans voru kaffibændur og Jan ólst upp á litlum sveitabæ þar sem fjölskyldan ræktaði kaffiber en þau voru einnig með heimili í borginni þar sem Jan og bræður hans fóru í skóla. Fljótlega eftir að Jan flutti til Grundarfjarðar fæddist sú hugmynd hjá þeim hjónum að opna kaffihús og bjóða þar upp á kólumbískt kaffi. Nafnið Valeria er kólumbískt og er fengið úr fjölskyldu Jans en bróðurdóttir hans heitir Valeria.\r\n\r\nMjúk opnun \r\n\r\nVið aðalgötuna í Grundarfirði, á Grundargötu 24, stendur lítið dökkt hús með bláu þaki sem lætur lítið yfir sér. Framan við húsið er nýr og flottur sólpallur, borð og stólar og skilti sem á stendur ‘Valeria – kaffiristun og kaffihús’. Þegar blaðamann Skessuhorns bar að garði var glampandi sólskin og fallegt veður. Það var rólegt á kaffihúsinu og því kjörið að setjast út í sólina með kaffibolla.\r\n\r\nSíðasta sumar festu Marta og Jan kaup á þessu húsi við Grundargötu 24, við tók ár af framkvæmdum til að standsetja það og gera upp svo það myndi henta fyrir kaffiristun og kaffihús. Bæði voru þau í öðrum vinnum síðasta árið meðfram því að gera upp húsið og það gekk því hægar en ella. Marta segir það hins vegar hafa verið blessun að framkvæmdirnar hafi tekið þann tíma sem þær gerðu því nú í sumar opnuðu þau kaffihúsið og segir Marta að það hafi verið alveg réttur tími til að opna. „Við heyrðum af mjög skemmtilegu hugtaki sem er ‘mjúk opnun’, en þá opnar maður án þess að það sé endilega allt tilbúið og við gerðum það. Fyrsta daginn þá opnuðum við bókstaflega með  mínútna fyrirvara, við opnuðum bara hurðina og sögðum engum frá og svo fór bara fólk að týnast inn, fyrst einn og svo annar og síðan þá hefur það bara undið upp á sig. Við erum mjög ánægð með hvernig þetta fór og núna er hér yfirleitt þannig fjöldi að Jan getur bara séð um þetta einn og það hentar okkur rosalega vel núna.”\r\n\r\nGlæpagengi hrekja bændur burt\r\n\r\nJan er eins og áður sagði frá Kólumbíu, alinn upp af kaffibændum og hefur sjálfur unnið á ökrunum við að týna kaffiberin. Kólumbía er stórt og fjölmennt land og þar er töluverð spilling. Stórir glæpahópar gera smábændum lífið leitt með því að fara á sveitabæina, hóta bændunum öllu illu og taka þannig yfir jarðirnar. Þá neyðast bændurnir til að flýja sveitina sína ellegar ganga til liðs við glæpagengin eða hætta á að vera drepnir fyrir að vera ósamvinnuþýðir. Glæpagengið, sem er eins konar mafía, notar síðan jarðirnar til að rækta kókaín og önnur eiturlyf. Þetta var raunveruleikinn hjá foreldrum Jans, en fyrir nokkrum árum neyddust þau til að láta frá sér sveitabæinn sinn og flýja. Þau búa enn þá í Kólumbíu, en í borg, og eru núna orðnir ellilífeyrisþegar. „Það er ekki hægt að segja nei þegar mafían kemur og heimtar að þú látir af hendi sveitabæinn þinn. Kólumbía er svo ótrúlega stórt land, jú þú getur látið herinn vita og hann kemur þá og ræðst gegn mafíunni en það þýðir lítið. Mafían flýr til fjalla og felur sig þar til hermennirnir þurfa að fara í næsta verk, því þetta er svo stórt land að herinn getur ekki sinnt öllum svona tilfellum og fylgt þeim eftir. Svo þegar mafían kemur úr felum, kemur hún aftur heim til þín og drepur þig og fólkið þitt. Þetta hefur gerst við marga bændur og þeir búa núna flestir í borgum og betla peninga á götunni. Ég og mín fjölskylda erum heppin að vera á lífi og hafa það sæmilegt.” segir Jan.\r\n\r\nVersla kaffibaunir af kólumbískum smábændum\r\n\r\nJan og Marta kynntust þegar Jan var við störf í Sardiniu á Ítalíu. Þá vann hann á seglskútu, í einkaeigu, sem sigldi í Karabíska hafinu og Miðjarðarhafinu. Þegar Jan flutti svo til Íslands fyrir tveimur árum fann hann sterkt að hann vildi styðja við bakið á kaffibændum í Kólumbíu og úr varð hugmyndin að opna kaffihús þar sem allt kaffi kæmi beint frá smábændum þar. Bróðir Jans býr enn þá í Kólumbíu og hann sér um útflutningsferlið á kaffinu þaðan, sem getur á margan hátt reynst erfitt. „Hann sér sjálfur um að fara á bæina og sækja kaffibaunirnar, pakka þeim inn og senda þær úr landi,“ segir Jan. Þau hjónin reyna helst að versla við þá bændur sem eru með minnstu framleiðsluna og hafa jafn vel ekki tök á að selja frá sér á aðra staði. Sumir sveitabæirnir eru afskekktir og segir Jan frá því að bróðir hans þurfi að fara á mótorhjóli á ákveðin býli þar sem vegirnir þangað eru einkar slæmir. Hann pakkar svo baununum sjálfur og sendir til Íslands. „Þegar við fáum kaffibaunirnar til okkar eru bændurnir búnir að þurrka þær og flysja. Við ristum svo kaffibaunirnar hér og búum til gott kaffi fyrir alla sem vilja,“ segir Jan.\r\nKólumbía er þekkt fyrir kaffiræktun og kaffið þaðan er betra að gæðum en kaffi annars staðar frá, segir Jan, vegna þess að í Kólumbíu eru kaffiber handtýnd en í öðrum löndum, eins og Brasilíu, eru þau týnd með vélum. Þegar berin eru handtýnd eru bara tekin þau ber sem eru orðin mátulega þroskuð en grænjaxlarnir skildir eftir. Það gerir að verkum að kaffið verður bragðbetra. Þá liggur beinast við að spyrja hvort Jan hafi sjálfur háan standard þegar kemur að kaffi eða hvort hann drekki hvað sem er. Því svarar hann: „Á bænum mínum verkuðum við og seldum frá okkur allar kaffibaunir sem við ræktuðum. Við keyptum svo ódýrt kaffi til einkanota í næstu matvörubúð.“ Jan er því alinn upp við kaffidrykkju sem ekki er ósvipuð kaffidrykkju íslenskra bænda þar sem kaffið er ódýr uppáhellingur. Hjónunum finnst þó báðum gott að fá sér góðan kaffibolla. „Við erum bæði að glíma við ákveðið vandamál en það er koffínið sem fer illa í okkur svo við þurfum að drekka kaffið í hófi. Þegar við svo ákveðum að fá okkur kaffibolla þá viljum við hafa hann góðan.“\r\n\r\nLitríkir veggir og ljúfir tónar\r\n\r\nÞegar gengið er inn í kaffihúsið blasir strax við kaffisalan. Þar er Jan á heimavelli, malar kaffi og útbýr drykki fyrir gestina sem koma nú inn hver af öðrum. Rýmið er einstaklega notalegt, það er hátt til lofts og hlýir litir prýða veggina. Í einu horninu er stór svört vél sem notuð er til að ristaa kaffibaunirnar. Baununum er hellt ofan í vélina sem veltast svo um inni í henni í miklum hita. Ferlið tekur einungis nokkrar mínútur og fylgjast þarf vel með allan tímann svo baunirnar verði alveg nógu ristaðar en þó ekki um of svo þær brenni, og þar geta sekúndur skipt máli.\r\nÍ rýminu eru mörg falleg og upplýsandi veggspjöld sem sýna t.d. hvernig ákveðnir kaffidrykkir eru útbúnir. Þá eru líka upplýsingar um og sýnishorn af þeim kaffibaunum sem Valeria notar. Undir öllu húsinu er kjallari og um þessar mundir er verið að leggja lokahönd á að útbúa hann fyrir veturinn sem setustofu fyrir viðskiptavini. Þar er lágt til lofts og er rýmið þrískipt. Búið er að mála veggina þar ýmist ljósbrúna eða bláa en sumir veggir hafa verið klæddir með ljósum panel. Í loftinu eru bitar sem málaðir hafa verið svartir og í hátölurum hljómar ljúf kólumbísk tónlist. Búið er að fylla rýmið af plöntum og ljósaseríum og er heildarútkoman mjög notaleg og instagramvæn.\r\n\r\nKaffið er í fyrsta sæti\r\n\r\nÁ drykkjarseðlinum eru hinir ýmsu kaffidrykkir, bæði heitir og kaldir og segir Marta að Cappuccino sé einna vinsælasti drykkurinn, það er ef fólki líkar mjólkurblandað kaffi. Kaldir drykkir eru líka á boðstólum, Frappuccino, Ice latte og fleira. Hingað til hafa ekki verið neinar veitingar í boði með kaffinu og Marta segir það ekki trufla viðskiptavinina. „Húsið er frekar lítið svo það er ekki mikið pláss fyrir einhverja almennilega veitingasölu. Við erum að einblína á kaffi númer eitt, tvö og þrjú og fólk er almennt ánægt með það.“\r\nTveir mánuðir eru síðan kaffihúsið opnaði og hefur það verið vel sótt bæði af ferðamönnum og Grundfirðingum. „Heimamennirnir eru duglegir að koma til að fá sér kaffibolla en við erum líka að selja kaffibaunir í pokum og það er vinsælt mjög vinsælt að kaupa það til að hella upp á heima hjá sér eða gefa í gjafir.“\r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"large\" ids=\"55955,55956,55957,55958\"]\r\n\r\n \r\n\r\n \r\n\r\nHér að neðan má sjá myndband sem Skessuhorn tók á Valeriu í ágústmánuði\r\n\r\nhttps://youtu.be/39EUKAOGwuE",
"innerBlocks": []