
Yfirfallið til norðurs í Flosaskarð.
Hafrafellslón á yfirfalli
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Staðan er enn óviss við Hafrafellslón við Langjökul þótt sljákkað hafi um stund í Hvítá síðan hlýindin og leysingarnar voru sem mestar fyrir nokkrum dögum. Bergþór Kristleifsson á Húsafelli flaug yfir svæðið í gær og gaf blaðinu góðfúslegt leyfi til birtingar mynda sem hann tók við það tækifæri. Hann segir lónið á yfirfalli til norðurs núna ofan í Flosaskarð, en það hafi ekki alltaf verið tilfellið. Mannvirki séu ekki í beinni hættu komi flóð í ána nema þá mögulega brúin sem er fyrir ofan Húsafell, en vatnsyfirborðið náði nánast upp undir í brúargólfið í hlaupinu árið 2020. Ef og þegar hlaup verði úr lóninu væri hentugast ef það yrði á tíma þar sem ekki væri fyrir í henni hlýindaflóð sem bætist annars við vatnsmagnið. Veðurstofan fylgist grannt með framvindu mála en er þó ekki með mælitæki við lónið sjálft sem þó væri árangursríkast að mati Bergþórs. Hann nefndi líka þann möguleika að rjúfa og lækka þar með yfirfallið sem gæti haft góð áhrif á stöðuna.\r\n\r\n[gallery size=\"medium\" ids=\"55963,55962,55961\"]\r\n\r\n ",
"innerBlocks": []
}