Hlutfallslega fjölgaði íbúum í Hvalfjarðarsveit mest á síðustu níu mánuðum, en myndin er tekin á Hagamel. Í Borgarbyggð er hins vegar að finna helming þeirrar íbúafjölgunar sem varð á Vesturlandi. Ljósm. arg.

Íbúum fjölgar á Vesturlandi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Íbúum á Vesturlandi hefur frá 1. desember síðastliðnum fjölgað um 307 sem jafngildir 0,6%. Íbúum fjölgar í öllum landshlutum nema á Norðurlandi vestra. Hlutfallslega mest hefur fjölgunin verið á Suðurnesjum eða um 4,9% sem er fjölgun um 1.426 íbúa. Íbúum á Suðurlandi fjölgaði um 2,7% á tímabilinu eða um 870 íbúa. Íbúum á Norðurlandi vestra fækkaði um 5 eða um 0,1%. Samtals fjölgar íbúum á landinu öllu um 2,0% á síðustu níu mánuðum.\r\n\r\nÍbúum fækkaði í þremur sveitarfélögum á Vesturlandi á tímabilinu; um 11 manns í Snæfellsbæ, þrjá í Skorradal og einn í Dalabyggð. Annarsstaðar fjölgar íbúum á þessu níu mánaða tímabili. Langmest fjölgun er í Borgarbyggð en rekja má réttan helming íbúafjölgunar á Vesturlandi þangað. Íbúar í Borgarbyggð eru nú 4.029 og er það 4% fjölgun frá 1. desember síðastliðinn. Hlutfallslega fjölgaði þó íbúum meira í Hvalfjarðarsveit, eða um 51 íbúa sem jafngildir 7,4%. Þar eru nú 738 búsettir. Á Akranesi fjölgaði um 84 íbúa sem jafngildir 1,1% og eru 7.922 nú búsettir þar. Vænta má þess að öðrum hvorum megin við næstu áramót fari íbúafjöldi á Akranesi yfir átta þúsund. Í Grundarfirði eru 854 búsettir, fjölgaði um 15 á tímabilinu. Í Stykkishólmi fjölgaði um 2,9% og þar búa nú 1308. Í Skorradalshreppi búa nú 57, í Eyja- og Miklaholtshreppi 106, í Snæfellsbæ 1.659 og 662 í Dalabyggð.",
  "innerBlocks": []
}
Íbúum fjölgar á Vesturlandi - Skessuhorn