Sigsteinn Grétarsson.

Sigsteinn Grétarsson ráðinn forstjóri Skaginn 3X og Baader Ísland

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Samið hefur verið við Sigstein Grétarsson um að taka við sem forstjóri Skagans 3X og Baader á Íslandi. „BAADER styrkir áfram teymið á Íslandi með ráðningu á Sigsteini Grétarssyni í stöðu forstjóra. Sigsteinn er margreyndur stjórnandi og leiðtogi með margþætta reynslu af alþjóðaviðskiptum og matvælatækni,“ segir í tilkynningu frá fyrirtækinu. Þar segir jafnframt: „Ráðningin er liður í að styrkja enn frekar stöðuna í íslenska hluta fyrirtækisins sem samanstendur af Baader Ísland og Skaginn 3X. Haft er eftir Robert Focke forstjóra Baader Fish í Þýskalandi að þetta sé mikilvæg ráðning til að styrkja íslenska stjórnendateymið og að ráðningin sé lykil skref í áætlunum um að vera óumdeildur leiðtogi í heildarkerfum fyrir mismunandi tegundir fisks.“\r\n\r\nFram kemur í tilkynningu að aðspurður segir Sigsteinn að það séu spennandi verkefni framundan. „Baader hefur verið hornsteinn í íslenskum sjávarútvegi í yfir 60 ár og hefur við góðan orðstír leitt sjálfvirkni í tækjabúnaði. Verkefnin halda áfram og við ætlum okkur að vera sá aðili sem er leiðandi í góðu samstarfi við íslenskan sjávarútveg.“",
  "innerBlocks": []
}
Sigsteinn Grétarsson ráðinn forstjóri Skaginn 3X og Baader Ísland - Skessuhorn