Kristrún byrjar fundaferð sína á Akranesi í dag

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Kristrún Frostadóttir alþingismaður (S) hefur boðað til fjölda opinna funda um land allt á næstu vikum. Hringferðin hefst á Akranesi í dag, mánudaginn 5. september, með opnum fundi í Golfskálanum sem hefst kl. 17:00. Það vakti athygli síðasta vetur þegar Kristrún lagði land undir fót og hélt 37 opna fundi með fólki í heimabyggð þess undir yfirskriftinni „Samræða um framtíðina“.\r\n\r\n„Síðasta vetur lagði ég áherslu á að vera með opna fundi á fámennari stöðum, þar sem ég hafði ekki fundað í kosningabaráttunni haustið áður. Þá byrjaði ég í Borgarnesi. En nú ætla ég að taka annan hring og byrja á Skaganum. Og í þetta sinn sem frambjóðandi til formanns í Samfylkingunni, jafnaðarmannaflokki Íslands,“ segir Kristrún. Fundurinn er opinn öllum og fyrirkomulagið segir hún verða afslappað. Kristrún flytur stutta framsögu og leitast síðan eftir samtali og ólíkum sjónarmiðum: „Það kemur ekkert í staðinn fyrir beint samtal við fólk. Ég vil eiga opið samtal og svara spurningum. Og ég vil segja betur frá þeim hugmyndum sem ég setti fram í Iðnó um daginn þegar ég tilkynnti framboð til formanns. Þær hafa greinilega vakið athygli víða. Ég vil að við jafnaðarmenn förum aftur í kjarnann og náum virkari tengingu við venjulegt fólk um land allt,“ segir Kristrún og bætir við að lokum: „Ég vona bara að sjái sem flesta Skagamenn í Golfskálanum í dag, líka fólk sem er ekkert endilega alltaf á sömu línu og ég í pólitík.“",
  "innerBlocks": []
}
Kristrún byrjar fundaferð sína á Akranesi í dag - Skessuhorn