Fréttir

true

Hreinn úrslitaleikur í kvöld við Holland

Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu mætir í kvöld Hollandi í síðasta leik sínum í undankeppni fyrir HM 2023. Leikurinn er hreinn úrslitaleikur um sæti á mótinu sem fram fer í Ástralíu og Nýja Sjálandi, en jafntefli dugar íslenska liðinu til að komast áfram. Leikurinn gegn Hollandi hefst klukkan 18:45 að íslenskum tíma og er sýndur í…Lesa meira

true

Varaþingmanni Flokks fólksins vikið úr flokknum

Þórunni Björgu Bjarnadóttur landbúnaðarverkakonu hefur verið vikið úr Flokki fólksins, en hún skipaði annað sæti á lista FF í Norðvesturkjördæmi við síðustu alþingiskosningar og hefur því fram að þessu verið varaþingmaður Eyjólfs Ármannssonar alþingismanns. Það er Vísir.is sem greinir frá málinu. Þar segir: „Varaþingmanni Flokks fólksins hefur verið vikið úr flokknum vegna tengsla við meint…Lesa meira

true

Skrýtnu veiðisumri að ljúka

,,Við vorum að koma úr Hítará og það var rólegt. Það veiddust nokkrir laxar í hollinu. Í fyrra á sama tíma fengum við fína veiði,“ sagði Axel Ingi Viðarsson sem var við veiðar í Hítará á Mýrum. Áin hefur nú gefið sömu veiði, nánast uppá fisk, og fyrir ári, eða í kringum 550 laxa. Vatnið…Lesa meira

true

Bongóblíða í Vatnaskógi

Hópur fermingarbarna úr Grundarfirði og Ólafsvík hefur síðustu daga dvalið í Vatnaskógi í fermingarbúðum. Með þeim er Aðalsteinn Þorvaldsson, sóknarprestur í Grundarfirði og Snæfellsbæ, og segir hann dvölina í Vatnaskógi einkum snúast um að kynnast, fræðast og gera alls konar skemmtilegt. Mikil veðurblíða hefur verið síðustu daga og hafa krakkarnir meðal annars leikið sér á…Lesa meira

true

Gott veður til sjósóknar í upphafi nýs kvótaárs

Síðustu daga hefur verið sannkallað blíðskapar veður á Snæfellsnesi og því hafa sjómenn getað róið að undanförnu. Ekki spillir fyrir að nýtt kvótaár er gengið í garð og margir bátar byrjaðir aftur veiðar eftir sumarstopp og kvótaleysi. Mál sjómanna er að það sé meira en nóg af fiski í sjónum og menn skilja því ekki…Lesa meira

true

Víkingur Ó. hafði betur gegn Reyni Sandgerði

Víkingur Ólafsvík og Reynir Sandgerði mættust á laugardaginn í 2. deild karla í knattspyrnu á Ólafsvíkurvelli og lauk leiknum með naumum sigri heimamanna, lokatölur 2-1 fyrir Víking. Luke Williams kom Víkingi yfir á 23. mínútu með sínu fyrsta marki í sumar og síðan var það fyrirliðinn Bjartur Bjarmi Barkarson sem bætti við öðru marki úr…Lesa meira

true

Verkefnisstjórn Sundabrautar hélt sinn fyrsta fund

Stefnt er að því að hefja framkvæmdir við lagningu Sundabrautar árið 2026 og að hún verði tekin í notkun árið 2031. Þetta kemur fram á vefsíðu Vegagerðarinnar. Mikil tímamót urðu í síðustu viku þegar verkefnisstjórn Sundabrautar hélt sinn fyrsta fund. Sá fundur setur ákveðinn tón og gefur fólki von um að Sundabrautin verði að lokum…Lesa meira

true

Ferðamenn freistast til að spara stöðugjaldið

Eftir að gjaldskylda var tekin upp á nýja bílastæðinu við áningarstaðinn Kirkjufell í Grundarfirði hafa ferðamenn gert ýmislegt til að spara sér gjaldtökuna. Flestir ferðamennirnir leggja nú á bílastæðinu en svo er alltaf einn og einn sem freistast til að finna sér bílastæði utan við hið hefðbundna stæði. Þá fylgja oft fleiri í kjölfarið og…Lesa meira

true

Kári gerði jafntefli við Vængi Júpiters

Kári og Vængir Júpiters áttust við í 3. deild karla í knattspyrnu á föstudagskvöldið og fór viðureignin fram í Akraneshöllinni. Vængir Júpiters komust yfir á 13. mínútu þegar Bjarki Fannar Arnþórsson skoraði fyrir gestina og þó að Kári væri meira með boltann það sem eftir lifði af hálfleiknum sköpuðu þeir sér lítið sem ekkert af…Lesa meira

true

Hausthátíð Kaupfélagsins í sólinni

Hausthátíð Kaupfélags Borgfirðinga var haldin í blíðskaparveðri síðastliðinn laugardag. Boðið var upp á pylsur og drykki og góðan vöruafslátt. Söluaðilar voru með kynningar og síðast en ekki síst var haldið líflegt uppboð á athyglisverðum vörum. Góð stemning var á svæðinu og gestir nutu stakrar veðurblíðu í boði septembermánaðar og KB. Sjá myndir í Skessuhorni sem…Lesa meira