Verkefnisstjórn Sundabrautar á sínum fyrsta fundi. Frá vinstri. Bryndís Friðriksdóttir frá Vegagerðinni, Árni Freyr Stefánsson fulltrúi innviðaráðuneytis, Sævar Freyr Þráinsson fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga, Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir fulltrúi frá Reykjavíkurborg og Guðmundur Valur Guðmundsson frá Vegagerðinni. Ljósm. Vegagerðin.

Verkefnisstjórn Sundabrautar hélt sinn fyrsta fund

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Stefnt er að því að hefja framkvæmdir við lagningu Sundabrautar árið 2026 og að hún verði tekin í notkun árið 2031. Þetta kemur fram á vefsíðu Vegagerðarinnar. Mikil tímamót urðu í síðustu viku þegar verkefnisstjórn Sundabrautar hélt sinn fyrsta fund. Sá fundur setur ákveðinn tón og gefur fólki von um að Sundabrautin verði að lokum að veruleika. Í verkefnisstjórninni sitja tveir fulltrúar frá Vegagerðinni auk fulltrúa frá innviðaráðuneytinu, Reykjavíkurborg og Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Hlutverk verkefnisstjórnarinnar er einkum að hafa umsjón með og fylgja eftir undirbúningi framkvæmda við Sundabraut. Þá hefur Vegagerðin auglýst eftir verkefnastjóra sem mun vinna fyrir verkefnisstjórnina að margþættum undirbúningi þessa stóra verkefnis.\r\n\r\nLagning Sundabrautar styttir ferðatíma vegfarenda til og frá höfuðborgarsvæðinu og er samkvæmt niðurstöðum félagshagfræðilegrar greiningar, metin þjóðhagslega hagkvæm. Útdrátt úr þeirri greiningu má finna á vef Vegagerðarinnar. Þá feli Sundabraut í sér mikinn samfélagslegan ávinning, hvort sem hún verði lögð með brú eða jarðgöngum undir sjó. Mestur ábati við opnun Sundabrautar felst í minni akstri, útblæstri og mengun en heildarakstur á höfuðborgarsvæðinu gæti minnkað um 150 þúsund kílómetra á hverjum sólarhring.",
  "innerBlocks": []
}
Verkefnisstjórn Sundabrautar hélt sinn fyrsta fund - Skessuhorn