
Fleiri bílar á afleggjaranum að Hálsi en bílastæðinu. Ljósm. tfk.
Ferðamenn freistast til að spara stöðugjaldið
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Eftir að gjaldskylda var tekin upp á nýja bílastæðinu við áningarstaðinn Kirkjufell í Grundarfirði hafa ferðamenn gert ýmislegt til að spara sér gjaldtökuna. Flestir ferðamennirnir leggja nú á bílastæðinu en svo er alltaf einn og einn sem freistast til að finna sér bílastæði utan við hið hefðbundna stæði. Þá fylgja oft fleiri í kjölfarið og myndast einhvers konar hjarðhegðun við uppátækið. Fréttaritara blöskraði þó ástandið á dögunum þegar hann átti leið þarna framhjá. Fleiri bílar voru þá á afleggjaranum að bænum Hálsi heldur en á bílastæðinu sjálfu. Þetta veldur eflaust óþægindum fyrir landeigendur á Hálsi sem reka þar ferðaþjónustu og smá geita- og fjárbúskap. Hátt í tuttugu bílar voru á afleggjaranum en ellefu á sama tíma á bílastæðinu.",
"innerBlocks": []
}