
Landað úr línubátnum Sverri SH í Ólafsvíkurhöfn.
Gott veður til sjósóknar í upphafi nýs kvótaárs
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Síðustu daga hefur verið sannkallað blíðskapar veður á Snæfellsnesi og því hafa sjómenn getað róið að undanförnu. Ekki spillir fyrir að nýtt kvótaár er gengið í garð og margir bátar byrjaðir aftur veiðar eftir sumarstopp og kvótaleysi. Mál sjómanna er að það sé meira en nóg af fiski í sjónum og menn skilja því ekki skertar veiðiheimildir. Segja þeir engu líkara en að það sé stefna stjórnvalda að knésetja einyrkja og koma sem mestum aflaheimildum í hendur stórútgerða. Þetta segja sjómenn sem Skessuhorn hefur rætt við á kajanum og liggur þeim hátt rómurinn þegar þessi mál ber á góma.\r\n\r\nAflabrögð hafa verið ágæt að undanförnu og afli línubáta farið í 15 tonn yfir daginn. Svipað má segja um dragnótarbáta sem róa á heimamiðum, en nokkrir eru þegar farnir til veiða út af Vestfjörðum þar sem þeir hafa fiskað vel, eins og Magnús SH sem landaði 27 tonnum af rígaþorski í Bolungarvík eftir daginn. Einnig hefur Saxhamar SH fiskað vel á svipuðum slóðum.",
"innerBlocks": []
}