
Brynjar Þór Hreggviðsson með lax úr Norðurá í Borgarfirði.
Skrýtnu veiðisumri að ljúka
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": ",,Við vorum að koma úr Hítará og það var rólegt. Það veiddust nokkrir laxar í hollinu. Í fyrra á sama tíma fengum við fína veiði,“ sagði Axel Ingi Viðarsson sem var við veiðar í Hítará á Mýrum. Áin hefur nú gefið sömu veiði, nánast uppá fisk, og fyrir ári, eða í kringum 550 laxa.\r\n\r\nVatnið hefur ekki vantað í sumar en fiskurinn hefur verið fremur tregur þegar liðið hefur á veiðitímann. ,,Við vorum í Haukadalsá og Langá um daginn en fiskurinn tók bara alls ekki hjá okkur, hann var helvíti tregur,“ sagði veiðimaður og bætti við: „Það var sama hvað þeim var boðið, sérstaklega í Langá, þeir höfðu bara engan áhuga,“ sagði veiðimaðurinn ennfremur.\r\n\r\nJá, ballið er að vera búið, þrátt fyrir að veiðin hafi verið góð á tímabili í sumar, eru nokkrar laxveiðiár varla að ná veiðinni í fyrra. Norðurá er nú í kringum 1300 laxa, í fyrra gaf hún 1431 lax. Haffjarðará vantar ennþá 100 laxa uppá veiðina í fyrra og svona mætti áfram telja. Mikið vatn er í ánum en færri fiskar og þeir eru tregir að taka.",
"innerBlocks": []
}