{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Eftirtaldir fuglar keppa nú um að verma hæstu fuglaþúfuna 2022: Auðnutittlingur, himbrimi, hrafn, hrossagaukur, jaðrakan, kría og maríuerla. Hægt er að kynna sér fróðleiksmola um tegundirnar á www.fuglarsins.is og kjósa þann fugl sem verðskuldar hæstan sess þetta árið. Tilkynnt verður um Fugl ársins 2022 á Degi ísenskrar náttúru, 16. september.\r\n\r\nMeð kosningu á Fugli ársins vill Fuglavernd vekja athygli á málefnum fugla. Margar fuglategundir sækja hingað til lands vegna góðra og oft framúrskarandi aðstæðna til að ala unga sína en sumar þeirra eru í hættu vegna umsvifa mannsins, loftslagsbreytinga eða eyðingar búsvæða. Einstaka fuglar njóta ákveðinna óvinsælda vegna lífshátta sinna og veitir ekki af tækifæri til að reyna að bæta ímynd sína. Mest er þetta þó til gamans gert svona í lok sumars þegar horft er til baka yfir varptímabilið og á eftir farfuglunum okkar sem vonandi snúa á vetrarstöðvarnar með ungana sína og heim aftur næsta vor.\r\n\r\n<a href=\"http://fuglarsins.is/kosning\">Opnað var fyrir kosningu á fugli ársins í dag 5. september og stendur til 12. september.</a>",
"innerBlocks": []
}