
Árni B Bragason á Þorgautsstöðum II leitar fjár. Ljósm. mm.
Nesmelsrétt í Hvítársíðu var fyrsta rétt haustsins
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Það viðraði vel fyrir bændur og búsmala þegar Síðufjallið var smalað á laugardaginn og féð rekið til réttar á Nesmel í Hvítársíðu. Þægileg gola og sextán stiga hiti gerði daginn fallegan í alla staði. Síðufjallið er einkum smalað til að létta á þeim fjárfjölda sem annars væri rekinn til Þverárréttar um næstu helgi. Féð í réttinni var að stærstum hluta frá þremur bæjum; Sámsstöðum og Bjarnastöðum í Hvítársíðu og Ásbjarnarstöðum í Stafholtstungum. Réttarhaldið tók ekki langan tíma. Skemmtileg tilbreyting var að ísbíllinn renndi í hlað um svipað leiti og réttin var að byrja; smölum; bændum og búaliði þeirra til ómældrar ánægju. Allir fengu íspinna og jafnvel fleiri en einn því klára þurfti úr kössunum því frystir var ekki á staðnum.\r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"large\" ids=\"55990,55991,55992,55993,55994,55995\"]",
"innerBlocks": []
}