Fréttir

true

Tólf ráðherrar í nýrri ríkisstjórn

Eftir hádegi í dag verður ný ríkisstjórn kynnt og sömuleiðis stjórnarsáttmáli sem Framsóknarflokkur, Sjálfstæðisflokkur og Vinstri hreyfingin grænt framboð hafa staðfest. Formlega tekur stjórnin síðan við á ríkisráðsfundi síðdegis. Miklar breytingar verða á ráðuneytum og verkaskiptingu þeirra. Ný ráðuneyti stofnuð og verkefni þannig færð milli ráðuneyta. Sjálfstæðisflokkur verður áfram með fimm ráðuneyti, Framsókn með fjögur…Lesa meira

true

Ný ríkisstjórn tekur við síðdegis í dag

Ríkisráð Íslands mun koma saman til tveggja funda í dag, sunnudaginn 28. nóvember. Fyrri fundurinn hefst klukkan 15 en þar mun forseti Íslands veita núverandi ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur lausn frá störfum. Á síðari fundinum sem hefst klukkan 16 mun forseti Íslands skipa nýtt ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur. Sömu flokkar og skipuðu síðustu ríkisstjórn; Framsóknarflokkur, Sjálfstæðisflokkur og…Lesa meira

true

Hertar sóttvarnaaðgerðir við komu frá skilgreindum löndum

Öllum sem koma til landsins og hafa dvalið meira en sólarhring síðastliðna 14 daga á skilgreindum hááhættusvæðum Covid-19 verður skylt að fara í PCR-próf við komuna til landsins og síðan í sóttkví sem lýkur með öðru PCR prófi fimm dögum síðar. Þetta gildir um alla sem dvalið hafa á hááhættusvæði, hvort sem þau eru bólusett…Lesa meira

true

Snæfellsstúlkur náðu sigri gegn Aþenu í hörkuleik

Snæfell skellti sér á Skagann í gærkvöldi og lék gegn liði Aþenu UMFK í 1. deild kvenna í körfuknattleik en Aþenustúlkur frá Kjalarnesi leika heimaleiki sína í vetur á Akranesi. Það má með sanni segja að hart hafi verið barist í íþróttahúsinu við Vesturgötu í gærkvöldi og hörkuleikur sem leikmenn buðu áhorfendum upp á. Snæfell…Lesa meira

true

Álftanes stöðvaði sigurgöngu Skallagríms

Skallagrímur tók á móti liði Álftaness í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi og varð að sætta sig við tap, lokatölur 79:91. Skallagrímur hafði unnið þrjá leiki í röð í deildinni fyrir leik kvöldsins og hefði með sigri getað nálgast liðin í efri hlutanum. Gestirnir voru þó alls ekki á því og byrjuðu leikinn…Lesa meira

true

„Það kom aldrei neitt annað nafn til greina“

Nafnið Jón G. Baldvinsson hljómar kunnuglega í eyrum flestra þeirra veiðimanna sem dvalið hafa við Norðurá í Borgarfirði við veiðar. Jón, eða Nonni Bald, eins og kunnugir kalla hann, hefur dvalið á bökkum Norðurár í ríflega fimmtíu ár, varð strax ástfanginn af ánni og hefur nú gefið út bók, ánni til heiðurs. Suðaði út veiðileyfi…Lesa meira

true

Verksamningur um innanhússfrágang Garðasels

Í dag var undirritaður verksamningur á milli Akraneskaupstaðar og E. Sigurðssonar um innanhúss frágang leikskólans Garðasels við Asparskóga á Akranesi en fyrirtækið sá einmitt um innanhússfrágang á jarðhæð Dalbrautar 4 þar sem skrifstofur Akraneskaupstaðar hafa aðsetur. Alls bárust fimm tilboð í verkið. Guðmundur Sigvaldason er framkvæmdastjóri Orkuvirkis sem sér um verkeftirlit ásamt Alfreð Þór Alfreðssyni,…Lesa meira

true

Vinnuvernd hvetur til inflúensubólusetningar

Fyrirtækið Vinnuvernd bendir á að í ljósi aðstæðna og mikils fjölda í Covid örvunarbólusetningum þessa dagana virðist sem hlutfall þeirra sem þiggja inflúensubólusetningu sé lægra nú miðað við undanfarin ár. „Heilbrigðisyfirvöld hafa hvatt fólk til þess að láta bólusetja sig því búast má við því að Inflúensan í ár gæti orðið einkar skæð þar sem…Lesa meira

true

Húnvetningar fara óvenjulega leið til að knýja á um vegagerð

Sveitarstjórn Húnaþings vestra hefur farið afar óvenjulega leið til að fjármagna og ýta við stjórnvöldum um vegagerð um Vatnsnesveg. Hafin er hópfjármögnun á Karolinafund vegna framkvæmda við veginn. Segir sveitarstjórn óásættanlegt að vegurinn sé ekki á samgönguáætlun fyrr en á árunum 2030 til 2034 og því hafi verið ákveðið að fara þessa leið. Vatnsnesvegur hefur…Lesa meira

true

Söguskilti afhjúpað við Miðgarð í Hvalfjarðarsveit

Halldór Blöndal fyrrverandi alþingismaður og ráðherra mun afhjúpa söguskilti við félagsheimilið Miðgarð, laugardaginn 27. nóvember næstkomandi kl. 12:00. Á skiltinu er farið yfir sögu Jóns Hreggviðssonar, Péturs Ottesen, Ytra-Hólms og Innri-Hólms ásamt Innri-Hólmskirkju. Á vef Hvalfjarðarsveitar segir að þetta sé annað skiltið sem er afhjúpað er í verkefninu Merking sögu og merkisstaða í Hvalfjarðarsveit. Það…Lesa meira