Húnvetningar fara óvenjulega leið til að knýja á um vegagerð

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Sveitarstjórn Húnaþings vestra hefur farið afar óvenjulega leið til að fjármagna og ýta við stjórnvöldum um vegagerð um Vatnsnesveg. Hafin er hópfjármögnun á Karolinafund vegna framkvæmda við veginn. Segir sveitarstjórn óásættanlegt að vegurinn sé ekki á samgönguáætlun fyrr en á árunum 2030 til 2034 og því hafi verið ákveðið að fara þessa leið. Vatnsnesvegur hefur ítrekað verið til umfjöllunar síðustu ár enda ein af torfærari leiðum á stofnvegum landsins; holóttur malarvegur í slæmu ástandi og þar verða reglulega umferðarslys. Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, sveitarstjóri Húnaþings vestra, segir að sveitarfélagið hafi vilja leggja sitt af mörkum til að flýta framkvæmdum við veginn. „Þetta var möguleiki sem við sáum í stöðunni, að fara af stað með hópfjármögnun og fá landsmenn og aðra sem unna Vatnsnesinu til að aðstoða okkur við það að safna fyrir því að við getum byrjað á framkvæmdum fyrr en ætlað er á samgönguáætlun,“ sagði Ragnheiður í viðtali við Ríkisútvarpið.\r\n\r\nVegurinn er 70 kílómetrar og er áætlað að það kosti 3,5 milljarða að byggja hann upp og malbika. Sveitarfélagið stefnir að því að safna 100 milljónum með samskotum og afhenda þær samgönguráðuneytinu. Söfnunarféð verður eyrnamerkt því að hönnun vegarins farið strax af stað. Þannig verði tilbúin hönnun og hægt að færa framkvæmdir fyrr á samgönguáætlun. Ragnheiður sveitarstjóri segir veginn í raun ónýtan og sé hann sérstaklega slæmur núna því ekki hafi náðst að hefla hann áður en frost hljóp í jörðu. Mörg skólabörn þurfa að ferðast um veginn daglega. Lengsta leiðin hjá skólabörnum í haust tekur tvo tíma og 20 mínútur, leið sem börnin eru vanalega klukkutíma að fara og tæplega það ef vegurinn væri í þokkalegu standi.",
  "innerBlocks": []
}
Húnvetningar fara óvenjulega leið til að knýja á um vegagerð - Skessuhorn