Fréttir

true

Fer með kosningamálið í NV til Strassburgar

Magnús D Norðdahl lögfræðingur og oddviti Pírata í NV kjördæmi fyrir kosningarnar í haust, hefur ákveðið að fara með kosningamálið í Norðvesturkjördæmi til Mannréttindadómstóls Evrópu í Strassburg. „Uppspretta valdsins í okkar samfélagi er í þingkosningum. Löggjafarvaldið velur hverjir fara með framkvæmdarvald sem síðan skipar þá sem fara með dómsvald. Heilindi kerfisins í heild eru því…Lesa meira

true

Urðu Norðurlandameistarar í hópkata

Kristrún Bára Guðjónsdóttir hjá Karatefélagi Akraness varð Norðurlandameistari í hópkata um helgina ásamt þeim Móeyju Maríu Sigþórsdóttur McClure frá Breiðabliki og Freyju Stígsdóttur frá Þórshamri. Mótið var haldið í Stavanger í Noregi. Ísland hefur einu sinni áður unnið til Norðurlandameistaratitils í liðakeppni, en það var árið 2012.Lesa meira

true

Aukin áhersla á skólamál í sameiningarferli tveggja sveitarfélaga

Samstarfsnefnd um sameiningu Eyja- og Miklaholtshrepps og Snæfellsbæjar hefur skilað áliti sínu til sveitarstjórnanna og munu þær koma saman í þessari viku og taka til fyrri umræðu. Í tilkynningu frá nefndinni kemur fram að brugðist hafi verið við þeim 56 ábendingum sem bárust í kjölfar samráðsfundar sem fram fór á Breiðabliki 16. nóvember sl. „Flestar…Lesa meira

true

Smit skjóta upp kollinum í skólum

Á liðnum dögum hafa kóvidsmit verið að greinast í grunnskólum í landshlutanum. Á föstudaginn var nemandi í 5. bekk Grunnskóla Snæfellssbæjar (norðan heiðar) greindur smitaður og í kjölfar smitrakningar voru fjórir nemendur og tveir starfsmenn sendir í sóttkví og fara í PCR próf í dag. Er niðurstöðu úr því að vænta í kvöld. Nemendur í…Lesa meira

true

Af nótnaborði náttúrunnar

Út er komin ríkulega myndskreytt bók um Pál Guðmundsson listamann á Húsafelli. Nefnist hún Af nótnaborði náttúrunnar. Höfundur texta er Sigmundur Ernir Rúnarsson en ljósmyndir tók aldavinur Páls; Friðþjófur Helgason ljósmyndari frá Akranesi. Í bókarkynningu segir höfundur: „Það er eins og úrið hægi á sér þegar Páll á Húsafelli er sóttur heim, enda er tíminn…Lesa meira

true

ÍA tapaði stórt gegn toppliði Hauka

Skagamenn sóttu Hauka heim í Hafnarfjörðinn í fyrstu deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöldið og urðu að sætta sig við stórtap, 108:66. Haukar byrjuðu af krafti og eftir aðeins tvær mínútur var staðan orðin 15:2 fyrir Hauka. Skagamenn náðu þó að bíta frá sér í kjölfarið og staðan eftir fyrsta leikhluta 30:19. Skagamenn náðu síðan…Lesa meira

true

Auka umferðaröryggi í gegnum Borgarnes

Nú er unnið að lagfæringum á göngustígum og gatnamótum á þremur stöðum á hringveginum í gegnum Borgarnes. Þar er eins og allir þekkja mikil og þung umferð bíla allt árið og því brýnt að bæta merkingar, mannvirki og lýsingu eins og kostur er. Undir lok vikunnar var verið að endurhlaða hraðahindrun á móts við leikskólann…Lesa meira

true

Jólaljósin tendruð við lágstemmda athöfn í Stykkishólmi

Næstkomandi miðvikudag, 1. desember, verða ljós tendruð á jólatrénu í Hólmgarði í Stykkishólmi. Í ljósi aukinna smita í samfélaginu verður viðburðurinn með svipuðu sniði og í fyrra. Grunnskólabörn í 1.-4. bekk munu eiga samverustund í Hólmgarði að morgni dags þegar 1. bekkur tendrar ljósin. Á síðasta ári varð í fyrsta sinn breyting á þeirri gömlu…Lesa meira

true

Landssamband veiðifélaga óttast áhrif ISA veirusýkingar í laxi

ISA-veiran, sem veldur sjúkdómnum blóðþorra í laxi, hefur greinst í sjókví hjá Löxum fiskeldi í Reyðarfirði. Um er að ræða skæðasta og hættulegasta veirusjúkdóm sem þekkist í laxeldi og er þetta í fyrsta skipti sem sjúkdómurinn kemur upp hér á landi. Ljóst er að afleiðingarnar fyrir íslenska náttúru og sjókvíaeldi hér á landi geta orðið…Lesa meira

true

„Ríkisstjórn um vaxandi velsæld“ – Nýjan stjórnarsáttmála má lesa hér

Framsóknarflokkur, Sjálfstæðisflokkur og Vinstrihreyfingin grænt framboð hafa gert með sér nýjan sáttmála um ríkisstjórnarsamstarf (sáttmálann í heild sinni má lesa hér að neðan). Í tilkynningu frá flokkunum þremur um nýjan sáttamála segir: „Sáttmálinn fjallar um sameiginlega hagsmuni þjóðarinnar þar sem birtast leiðarstef flokkanna um efnahagslegar og félagslegar framfarir, vernd umhverfis, kraftmikla verðmætasköpun, jafnrétti kynjanna og…Lesa meira